Sveitarstjórnarmál.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér skýrslu hæstv. félagsmálaráðherra um sveitarstjórnarmál. Ég vil í upphafi máls míns eftir að hafa lesið skýrsluna nota tækifærið og hrósa hæstv. ráðherra fyrir hana. Þetta er mjög góð að mörgu leyti og fróðleg samantekt um sveitarstjórnarmál. Ég las skýrsluna mér bæði til mikillar ánægju og fróðleiks. Ég verð að segja að hér er komið fram á sjónarsviðið mjög gagnlegt plagg, einkum þegar litið er til þess að það eru kosningar til sveitarstjórna í vor. Búið er að taka saman með aðgengilegum og auðlesnum hætti mikið af grundvallarupplýsingum um sveitarstjórnarmál sem getur gagnast fólki mjög vel, til að mynda fólki sem hyggst taka þátt í kosningunum í vor. Ég vil fá að segja sem formaður þingflokks Frjálslynda flokksins að ég hef gefið út fyrirskipun um að pantaðir verði nokkrir tugir eintaka af skýrslunni til að dreifa meðal míns fólks svo það geti lesið þetta. Mælst verður til þess að fólk kynni sér mjög vel efni skýrslunnar í mínum stjórnmálaflokki a.m.k., Frjálslynda flokknum, því eins og ég sagði áðan er hér samankomið mikið af gagnlegum upplýsingum.
Það er af mjög mörgu að taka í skýrslunni og ræðutíminn er allt of stuttur til að fara yfir allt sem um er fjallað. Mig langar aðeins að koma inn á í fyrri ræðu minni a.m.k. hlutverk sveitarfélaga og hlutverk þeirra sem bjóða sig fram til að starfa fyrir þau. Fram kemur í skýrslunni hvert hlutverk sveitarfélaga er, að sjálfsögðu. Það dylst engum sem les skýrsluna að hlutverk sveitarfélaga er mjög margþætt og það hljóta að vera gerðar miklar kröfur til þeirra sem takast á hendur trúnaðarstörf fyrir sveitarfélög. Við höfum séð á undanförnum árum að stór og viðamikil verkefni hafa verið að færast frá ríkinu yfir til sveitarfélaga og hafa bæst við mjög víðtæk og oft og tíðum flókin verkefni sem sveitarfélögin höfðu áður á hendi sér. Við getum nefnt alls konar velferðarþjónustu, grunnskólareksturinn, rekstur ýmiss konar félagsþjónustu og tæknilega þjónustu eins og gatnagerð, veiturekstur og annað sem því fylgir. Við getum talað um skipulags- og byggingarmál, menningarmál, íþróttamál og hluti tengda atvinnulífi í sveitarfélögunum. Þetta er svo sannarlega mjög margþætt og eflaust mjög flókið fyrir þá sem vinna í sveitarstjórnum að halda utan um þetta allt saman og hafa stjórn á þessu. Eins og ég sagði áðan hljóta að vera gerðar kröfur um að fólk standi sig í því sem það hefur boðið sig fram til að gera, að takast á herðar þessi miklu og mikilvægu trúnaðarstörf.
Fram kemur m.a. í skýrslunni að það eru mörg sveitarfélög á Íslandi. Það hlýtur því að vera mikil þátttaka meðal borgaranna í sveitarstjórnarmálum. Í skýrslunni kemur fram, þó tölurnar séu kannski orðnar svolítið gamlar þá eru þær fyllilega réttmætar enn sem komið er, að árið 2002 voru boðnir fram listar í 66 sveitarfélögum. Það voru hvorki meira né minna en tæplega 3.000 einstaklingar í framboði á rétt tæplega 200 listum. Árið 2002 þusti því tæpt 1% þjóðarinnar fram á vígvöll stjórnmálanna til að taka þátt í kosningum. Mér finnst þetta nokkuð vel af sér vikið og það kom mér svolítið á óvart hvað talan var há. Tæplega 3.000 einstaklingar sem tóku þátt í framboði, 1,4% af þeim sem eru á kjörskrá. Þetta sýnir kannski hversu mikill áhugi er þrátt fyrir allt hjá fólki á málefnum sveitarfélaga sinna. Skyldi engan undra því þetta varðar nærumhverfi fólks og það vill hafa einhver áhrif á sínar lífsaðstæður og sín lífskjör að hluta til og hvernig framtíðin er mótuð í þeim sveitarfélögum þar sem fólk býr. Það á ekkert að koma svo mjög á óvart. Ég held að við þekkjum það öll að okkur stendur ekki á sama um hvernig málum er háttað í okkar sveitarfélögum, málum sem varða til að mynda öldrunarþjónustu eða skólamál barnanna okkar, leikskólamál, gatnagerð, íþrótta- og tómstundamál og menningarmál. Þetta skiptir að sjálfsögðu allt miklu máli og hefur mikið að segja varðandi lífsgæði borgaranna á hverjum og einum stað.
Í skýrslunni er aðeins fjallað um hvaða ógnir steðji að sveitarstjórnum á Íslandi m.a. hvað þetta varðar. Mér finnst á margan hátt að þar séu hlutirnir ágætlega orðaðir. Á bls. 70 er talað um hverjar helstu ógnanir séu. Helsta ógnun margra sveitarfélaga á Íslandi er neikvæð íbúaþróun. Þarna hygg ég að sé komið að stærsta úrlausnarefni sem bíður stjórnvalda í dag, ekki bara í sveitarstjórnarmálum, heldur byggðamálum almennt, þ.e. hvernig við ætlum að fara að því að snúa við þeirri neikvæðu íbúaþróun sem á sér stað allt of víða úti á landi. Ég hef margoft talað um þetta í þessum ræðustól og bent á þetta vandamál og talað líka um leiðir til úrlausnar því ég hygg að þarna sé fyrirliggjandi mikil áskorun. Þetta er að sjálfsögðu ekki einfalt mál.
Ég hef gagnrýnt að hluti ástæðnanna liggi í því að lífsbjörgin hafi verið tekið frá allt of mörgum byggðarlögum, þ.e. aðgangur byggðanna til að nýta sínar mikilvægustu náttúruauðlindir hefur verið stórlega skertur með vitlausum ákvörðunum sem hafa verið teknar í þessum sal, því miður. Ég stend að sjálfsögðu fast við þær yfirlýsingar. Það hefur mikið að segja að fyrir hendi sé atvinna á þessum stöðum, það er grundvöllur þess að fólk vilji búa þar. Ef þetta er tekið frá fólki, þá, eins og hæstv. ráðherra sagði í morgun, kýs það með fótunum. Það fer eitthvað annað, flyst á brott.
Eins og segir í skýrslunni orðrétt, með leyfi forseta:
,,Íbúafækkun getur í sumum tilvikum skapað andrúmsloft örvæntingar og vonleysis sem ýtir sveitarstjórnum út á ystu nöf þess sem getur talist ábyrg fjármálastjórn. Íbúar margra sveitarfélaga vænta þess að sveitarstjórnin hafi forustu um atvinnuþróun byggðarlagsins og grípi inn í til að tryggja atvinnutækifærin. Slíkur þrýstingur getur leitt sveitarstjórnir inn á þá braut að taka beinan þátt í atvinnulífinu með tilheyrandi áhættu.“
Þetta er alveg hárrétt og sýnir kannski enn og aftur hversu mikil áskorun, hversu erfitt verkefni það getur verið fyrir borgara landsins að gefa sig að sveitarstjórnarmálum og fara í framboð til sveitarstjórna. Ég skil mjög vel að mörgum ói hreinlega við að takast á hendur þá ábyrgð. Það fylgir þeim störfum mikill erill oft og tíðum, hygg ég, og fólk veit að það er að taka á hendur sér mikla áhættu ef illa fer, kannski vegna atburðarásar sem það ræður einungis við að litlu leyti.
Þá kem ég einmitt að öðru sem ég rak augun í í skýrslunni þar sem fjallað er um kjör þeirra sem bjóða sig fram til sveitarstjórna. Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir minntist á þetta áðan í ræðu sinni. Mig langar aðeins að nefna þetta líka því þegar ég var að lesa skýrsluna rak ég einmitt augun í þennan texta. Ég finn hann ekki núna. En í framhaldi af því fór ég að skoða þetta svolítið nánar og fór inn á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga og fann þar könnun, könnun á kjörum sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga og greiðslum til nefndarmanna hjá íslenskum sveitarfélögum. Könnun sem var gerð eftir kosningarnar síðustu árið 2002. Þetta eru að vísu svolítið gamlar tölur og ég hefði gjarnan viljað sjá að svona könnun hefði verið gerð nú í aðdraganda kosninganna í vor.
Ég verð að segja að eftir að hafa lesið könnunina var mér verulega illa brugðið. Ég held að þetta sé mál sem við hljótum að verða að taka til endurskoðunar og opinskárrar umræðu. Hvers vegna er mér brugðið? Jú, mér er brugðið vegna greiðslnanna sem fólk fær fyrir að takast á hendur þessi ábyrgðarstörf. Fólk er að stíga fram fyrir skjöldu og takast á hendur oft og tíðum mikla ábyrgð og erfið verkefni. Ég verð að segja að sú þóknun sem er greidd fyrir verkefnin er skammarlega lág miðað við það sem stendur í skýrslunni. Nú vona ég svo sannarlega að tölurnar hafi eitthvað hækkað síðan árið 2002 og eflaust hafa þær gert það. En ef maður flettir og skoðar sveitarfélögin jafnvel af mismunandi stærð, hér er greint niður í 100–200 íbúa, 200–500 íbúa, 500–1.000 íbúa, 1.000–2.000 íbúa, 2.000–5.000 íbúa og yfir. Alls staðar verð ég að segja að greiðslur til fulltrúa í sveitarstjórnum eru skammarlega lágar og fyrir neðan allar hellur. Greiðslur fyrir setu í nefndum, sem oft hljóta að vera mikilvægar nefndir, til að mynda skólanefndir og aðrar nefndir eru beinlínis hlægilegar.
Þegar við sjáum hvernig þróunin hefur verið að undanförnu við lestur skýrslunnar og sjáum hversu flókin sveitarstjórnarmálin eru, hversu margir samverkandi þættir eru þarna, hversu vandasamt og ábyrgðarfullt það hlýtur að vera fyrir fólk að taka þátt í þessum störfum held ég að allir hljóti að sjá að það er virkilega kominn tími til að endurskoða þessa hluti og taka þessa umræðu finnst mér. Við getum ekki ætlast til að fólk takist á hendur slík verkefni án þess að því sé umbunað með sanngjörnum hætti. Ef ástandið er jafnslæmt nú og það var árið 2002 er virkilega kominn tími til að þessir hlutir verði skoðaðir.
Ég vildi fá að koma þessu að án þess að vera með neina afskiptasemi, nota tækifærið og beina þeim tilmælum út á við að þetta verði endurskoðað. Þjóðfélagsþróunin hefur verið þeim hætti, ef svo má segja, að fólk á ekki í vandræðum lengur með að verja tíma sínum í eitthvað annað en að vasast í stjórnmálum, hvort sem það er í sveitarstjórnarpólitík eða landsmálapólitík. Frístundatækifærin eru svo mörg í dag. Ég held að við vitum öll sem erum á hinum daglega vettvangi stjórnmálanna að það er ekkert sjálfsagður hlutur í dag til að mynda að fá fólk til að taka þátt í stjórnmálavinnu. Það er ekkert auðvelt. Ég hygg jafnvel að það sé að verða erfiðara og erfiðara með tímanum að fá fólk til að gefa sig að þessu því þessu fylgir oft og tíðum mikið álag, óregluleg vinna, nefndasetur, fundir og annað sem á sér stað jafnvel á þeim tíma þegar fólk ætti annars að eiga frí. Þess vegna held ég að það hljóti að vera bæði eðlilegt og sanngjarnt að öll þessi mál verði tekin til endurskoðunar. Við hljótum öll að sjá það.
Ég sé að tíma mínum er að ljúka, virðulegi forseti. Ég ætla því ekki að fara í fleiri þætti í þessari ræðu minni en óska hér með eftir því að ég verði settur aftur á mælendaskrá svo ég geti flutt seinni ræðu mína.