132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[16:21]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Í upphafi fyrri ræðu minnar hér áðan talaði ég almennt um þessa skýrslu og hrósaði innihaldi hennar og hve vel hún hefði verið gerð. Núna í upphafi seinni ræðu minnar vil ég koma á framfæri ábendingu: Ef sú tillaga sem margir þingmenn hafa komið fram með hér verður að veruleika, þ.e. að við fáum slíka skýrslu úr hendi hæstv. félagsmálaráðherra á hverju ári, verður í slíkri skýrslu að örla á því sem skortir í þessari skýrslu, þ.e. einhvers konar tilraun stjórnvalda, þá hæstv. ráðherra, til að horfa fram í tímann. Í slíkri skýrslu þarf að marka einhverja stefnu og setja fram pólitíska yfirlýsingu, það þarf að kveða fastar að orði en gert er hér. Ég ætla ekki að draga úr gildi þeirrar skýrslu sem hér liggur fyrir, alls ekki. Hún er, eins og ég hef sagt áður, á margan hátt mjög gott skjal sem ég hygg að muni gagnast fjölmörgum.

Margt í þessari skýrslu hefur vakið mig til umhugsunar, margir ágætir kaflar og margt ágætlega orðað. Það er að sjálfsögðu ekkert nema gott eitt um það að segja. Ég kom í fyrri ræðu minni aðeins inn á atvinnumálin og hvernig vitlausar ákvarðanir hér á hinu háa Alþingi hefðu leikið margar byggðir, og þar af leiðandi margar sveitarstjórnir, grátt. Sveitarstjórnirnar hafa í kjölfarið þurft að glíma við vandamál vegna minnkandi atvinnu, vegna samdráttar í atvinnulífinu, vegna fólksfækkunar og annarrar óáranar sem þrífst á því að byggðirnar eru sviptar möguleikum sínum til að einkaframtakið fái að blómstra og til að atvinnulífið fái að halda velli og helst blómstra í leiðinni. Þetta hefur því miður gerst í mörgum byggðarlögum umhverfis landið og ekki síst í sjávarbyggðum. Ég hygg að við þekkjum öll þá sorgarsögu. Ég tel það mjög brýnt verkefni fyrir stjórnmálamenn að reyna að hindra þessa þróun, að reyna að hamla henni.

Ég tók þátt í umræðu sem átti sér stað í síðustu viku um byggðamál þegar hæstv. byggðamálaráðherra lagði fram skýrslu sína um stefnumótun í byggðamálum. Hæstv. byggðamálaráðherra var þá, ef ég man rétt, nokkuð harðlega gagnrýnd fyrir það að leggja fram í þriðja sinn nánast sömu skýrsluna. Við skulum nú vona að hæstv. félagsmálaráðherra verði ekki gagnrýndur fyrir það þegar hann leggur fram þessa skýrslu aftur síðar meir, hvenær sem það nú verður.

Eitt af því fáa sem var nýtt í skýrslu hæstv. byggðamálaráðherra mátti finna í þeim sjö línum sem mér skilst að hafi verið öðruvísi í ár en í fyrra. Þar var minnst á norska skýrslu sem fjallar um hvernig stjórnvöld í Noregi hafa farið að því að reyna að styrkja byggð og þá jafnframt um leið stjórnsýslu og sveitarstjórnir í hinum dreifðu byggðum Noregs með aðferð sem oft hefur verið til umræðu hér á landi. Sú aðferð hefur oft verið rædd en því miður hefur ekki mikið verið um efndir. Sú aðferð felst í því að færa ríkisstofnanir af höfuðborgarsvæðinu út á land. Þá sjaldan það hefur verið reynt hér á landi hefur það kostað hávaða og læti. Ég fór og fann skýrsluna sem vitnað er í, eða nefnd er, — það er nú ekki vitnað í hana, hún er bara nefnd örfáum orðum í skýrslu byggðamálaráðherra. Ég fann þessa skýrslu á netinu og hef verið að glugga í hana. Þetta er skýrsla sem er gefin út af rannsóknarstofnun í Rogalandsfylki á suðvesturströnd Noregs og heitir á norsku: Effekter av utlokalisering av statlige arbeidsplasser, þ.e. áhrif af því að færa ríkisstörf út á landsbyggðina. Mig langar til að nota þetta tækifæri núna til að ræða efnislega helstu drættina í þessari skýrslu í stuttu máli. Norðmenn hafa notað þessa aðferð, þ.e. beitt markvisst þeirri pólitík að færa ríkisstörf út á land, síðan á sjöunda áratugnum. Það má segja að þetta hafi byrjað á fullu á áttunda áratugnum, þ.e. upp úr 1970. Síðan 1960 hafa Norðmenn flutt á milli 40–80 ríkisstofnanir út á land, að meðaltali eina eða tvær á ári. Í Svíþjóð hafa menn gert þetta í miklu meira mæli en í Noregi, hafa beitt þessu sem verkfæri í því að dreifa stjórnsýslunni og styrkja byggðirnar úti á landi. Í Noregi hafa menn flutt út á land 29 stjórnsýslueiningar, átta þekkingar- og menntastofnanir, sjö stofnanir sem sjá um opinberar skráningar og þrjár þjónustueiningar. Þegar maður skoðar þessar tölur nánar sér maður að frá árinu 1982 til 1992 hafa Norðmenn flutt út mjög mikið af ríkiseiningum eða stofnunum sem sjá um skráningar eða opinbera innheimtu. Þetta gerist að sjálfsögðu samfara þeirri öru þróun sem við höfum séð í tölvutækni frá þessum tíma. Menn hafa verið að færa sig upp á skaftið. Frá 2001 hefur verið ákveðið að flytja út á land mjög margar stofnanir sem hafa mjög náin tengsl við ráðuneytin sem eru jú öll í Ósló. Það má sjá að þessi þróun hefur orðið til þess að mönnum hefur vaxið ásmegin og vaxið kjarkur og farið að gera þetta í síauknum mæli vegna þess að menn sjá það af reynslunni að þetta er vel hægt. Þetta hefur verið að þróast þannig að stofnanirnar hafa verið færðar frá höfuðborgarsvæðinu og lengra og lengra út á land, til Vestur-Noregs og síðan til Norður-Noregs, í fleiri þúsund kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni. Menn virðast ekkert hafa sett það neitt sérstaklega fyrir sig þótt þetta hafi verið gert. Menn hafa verið að reyna að ná fram hagræðingu í ríkisrekstri með því að sérhæfa og safna saman verkefnum á vegum ríkisins á einn stað, þ.e. taka ákveðna hluti og safna þeim saman og þá um leið reynt að bæta þá þjónustu sem hefur verið veitt. Einnig hafa menn reynt að sæta lagi til að notfæra sér sérþekkingu sem er til staðar á ákveðnum svæðum í ákveðnum málaflokkum. Um leið hafa menn í sumum tilfellum að minnsta kosti verið að reyna að lina sársauka vegna stórra breytinga í atvinnulífi.

Af hverju nefni ég þetta í tengslum við þessa umræðu um sveitarstjórnarmálin? Ég tel að sveitarstjórnarmál og stjórnsýsla í sveitarfélögum sé oft og tíðum, hvað eigum við að segja, náskyld stjórnsýslu ríkisins. Ef við Íslendingar færum að ræða þetta af meiri alvöru en við höfum gert fram til þessa og hugsa meira um þetta en við höfum gert og framkvæma meira í þessa veru en við höfum gert hygg ég að samfara því að færa ríkisstofnanir út á land værum við líka í mörgum tilfellum að styrkja stjórnsýslu á viðkomandi svæðum og þar af leiðandi óbeint og jafnvel beint líka að styrkja stjórnsýslu sveitarstjórnanna. Því það er oft þannig að með þessum störfum fylgir fólk sem hefur menntun og þekkingu og reynslu. Í stjórnsýslustörfum er til að mynda fólk með háskólamenntun. Þetta skapar stöðug störf á þessum svæðum innan stjórnsýslu og ég hygg að þetta leiði af sér marga jákvæða þætti fyrir viðkomandi byggðir og viðkomandi samfélög. Það kemur glögglega fram í þessari skýrslu Norðmannanna að það hefur einmitt gerst í Noregi. Þó þetta kosti í sumum tilfellum einhver læti og átök þá virðist þetta til lengri tíma skila mjög miklu fyrir viðkomandi héruð. Það er svolítið skemmtilegt að sjá hver reynsla Norðmanna hefur verið. Ef þeir hafa gengið hreint til verks í þessum efnum, þ.e. ákveðið með stuttum fyrirvara að færa ríkisstofnanir út á land og síðan framkvæmt það á stuttum tíma, hafa hlutirnir gengið hvað best fyrir sig. Í staðinn fyrir að fólk eyði orkunni í að rífast um hvort eigi að gera þetta eða ekki hefur orkan farið í að leita lausna á þessu verkefni. Í staðinn fyrir að rífast hvert við annað hefur fólk einbeitt sér að því að fara út í þessa flutninga með sem sársaukaminnstum hætti. Þetta finnst mér svolítið áhugaverður punktur í reynslu frænda okkar og ég hygg að við mættum nota þetta til viðmiðunar hér á Íslandi líka.

En nóg um það, virðulegi forseti. Ég ætla að nota þær örfáu mínútur sem ég á eftir til að ræða annað sem komið er inn á hér í þessari skýrslu sem er siðferði á sveitarstjórnarstiginu, en um það er talað á bls. 32 og 33. Það er einn af mörgum punktum sem mér finnst vera nokkuð áhugaverðir og mér finnst að eigi fyllilega erindi inn í umræðuna. Það er nefnt hér á bls. 33 að Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hafi gert viðhorfskönnun árið 2000. Þar hafi komið fram að kunningsskapur, frændsemi og pólitísk fyrirgreiðsla vegi þungt á sveitarstjórnarstiginu. Í þessari könnun voru íbúarnir beðnir um að taka afstöðu til spurningarinnar: Telur þú að frændsemi, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla skipti mjög miklu, frekar miklu, nokkru, litlu eða engu máli til að fá málum framgengt í þínu sveitarfélagi? Alls 59% svarenda, tæplega 60%, töldu þessa þætti skipta mjög eða frekar miklu máli. Það er nokkuð hátt hlutfall. Alls 20% sögðu að það skipti nokkru, en 22%, þ.e. tæpur fjórðungur, taldi þessa þætti skipta litlu eða engu máli. Mér finnst þetta nokkuð athugavert og ég hygg að það væri alveg þess virði að slík rannsókn yrði gerð á nýjan leik, að fólk yrði spurt nákvæmlega sömu spurningar í dag. Ég hygg að oft og tíðum skipti þessir þættir þó nokkru máli einmitt í stjórnsýslu á sveitarstjórnarstiginu, kunningsskapur, frændsemi, pólitísk fyrirgreiðsla. Það leiðir enn og aftur hugann að því sem ég talaði um í fyrri ræðu minni og er kannski nokkuð viðkvæmt mál en það eru einmitt þau kjör sem sveitarstjórnarmenn á hverjum tíma búa við. Þau kjör mætti fyllilega taka til athugunar. Ég tel að þau kjör séu allt of slæm. Ég hygg að oft og tíðum sé jafnvel samhengi á milli þess hve slæm kjör sveitarstjórnarmanna eru og síðan þess hve hátt þættir eins og frændsemi, kunningsskapur eða pólitísk fyrirgreiðsla vega í verkum margra sveitarstjórna og hugsanlega margra sveitarstjórnarmanna.

Einnig virðast sveitarstjórnir oft og tíðum vera mjög mikið undir hælnum á ríkisstjórnarvaldinu, þ.e. flokkunum hér í Reykjavík. Mér hefur oft ofboðið að horfa upp á það til að mynda hvernig sveitarstjórnir hafa verið gersamlega lamaðar þegar farið hefur verið út í ýmsar breytingar varðandi atvinnulíf sveitarfélaga. Oft hafa þessar breytingar verið tengdar fiskveiðistjórnarkerfinu, þ.e. kvótakerfinu sem við búum við. Mér hefur oft og tíðum alveg ofboðið, hvað eigum við að segja, aumingjaskapurinn sem margar sveitarstjórnir hafa sýnt hvað það varðar að gera það sem þær eiga að gera, samkvæmt því sem nefnt er í þessari skýrslu, að verja atvinnuhagsmuni íbúanna. Það er sagt beinum orðum í þessari skýrslu að það sé eitt af meginverkefnum sveitarstjórna. En því miður hafa sveitarstjórnir á mörgum undanförnum árum á mörgum stöðum víða um land gjörsamlega brugðist í þessu mikilvæga hlutverki. Ég leyfi mér að nefna eitt sveitarfélag, sem er sveitarfélagið þar sem ég bý, Akranes, þar sem bæjarstjórnin hefur gjörsamlega brugðist trausti bæjarbúa varðandi það að verja atvinnuhagsmuni bæjarbúa núna þegar kvótinn hefur á borði verið tekinn af bæjarfélagi sem á að baki rúmlega 100 ára útgerðarsögu. Þetta hefur gerst núna á tveimur árum. Ég kannast ekki við að það hafi mætt mikilli andspyrnu bæjarstjórnarinnar þar því miður. Það má finna fleiri dæmi um þetta, til að mynda vestur á fjörðum og jafnvel víðar. Þetta held ég að þurfi að ræða mjög alvarlega í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sem fram undan eru, því það er líka nefnt í þessari skýrslu að hinir kjörnu fulltrúar, sveitarstjórnarmenn, leggi einmitt störf sín í dóm kjósenda í slíkum kosningum.