132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[17:19]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Jóhanni Ársælssyni rann blóðið til skyldunnar að verja bæjarstjórnina á Akranesi enda kannski ekkert skrýtið, hann er þingmaður Samfylkingarinnar og meiri hluti bæjarstjórnarinnar á Akranesi hefur um árabil verið saman settur af fulltrúum Samfylkingar og Framsóknarflokks. Kannski er ekkert nema gott eitt um það að segja að þingmaður Samfylkingarinnar komi hér upp og verji það sem ég var að gagnrýna.

Hv. þingmaður nefndi að að hans mati hefðu bæjaryfirvöld á sínum tíma — og þykir mér það frekar einkennilegt úr hans munni því að ég hefði haldið að hann væri mikill andstæðingur þessa fiskveiðistjórnarkerfis — reynt að gera allt sem þau gátu til að hjálpa útgerð á Akranesi þegar illa stóð á. Ég minni hv. þingmann á, og hann veit það eflaust betur en ég, að á sínum tíma gagnrýndu það einmitt mjög margir að verið væri að fara með sjávarútvegsfyrirtæki á Akranesi inn í fyrirtækið Harald Böðvarsson hf. og þar með verið að leggja öll eggin í eina körfu. Þetta hefur oft verið gagnrýnt og ég hygg að hv. þm. Jóhann Ársælsson kannist mjög vel við þá gagnrýni. Bæjaryfirvöld á Akranesi, að því er ég best veit, voru einmitt gagnrýnd fyrir það á sínum tíma að taka þessa áhættu því að margir sáu fyrir sér hættuna sem fylgir kvótakerfinu, hættuna á því að einstakir aðilar nái yfirráðum í sjávarútvegsfyrirtækjum og hlaupist síðan á brott með nýtingarréttinn að auðlindinni. Þetta er að sjálfsögðu gagnrýnisvert, þessi sögulega staðreynd.

Hitt er svo líka gagnrýnisvert, og því hefði ég viljað koma orðum að, en það er sú þróun sem hefur orðið núna á undanförnum missirum, þar hafa bæjaryfirvöld á Akranesi alls ekki staðið sig. Þau hefðu getað gert miklu meira til að hindra það sem virðist nú hafa komið á daginn. Tími minn er nú á þrotum þannig að ég kem nánar inn á það hér í síðara andsvari mínu.