132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[18:04]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég og hv. þingmaður eigum það sameiginlegt að við erum á móti því fyrirkomulagi sem er í sjávarútvegi á Íslandi. Hv. þingmaður hefur hins vegar valið sér það hlutverk að ráðast sérstaklega að einni sveitarstjórn í landinu, eða tveimur núna, vegna þess að þær hafi ekki passað upp á veiðiréttinn á sínu svæði. Ég held að hv. þingmaður ætti að skoða sig betur um og þá mun hann auðvitað sjá að það er ekki sveitarstjórnunum í landinu að kenna hvernig komið er í þessu efni. Það er ekki þar sem þessar reglur hafa verið settar. Ef hv. þingmaður hefur fylgst með hefur það verið þannig, þó að það hafi kannski ekki verið mikið upp á síðkastið enda ekki verið slíkar breytingar í gangi í kerfinu núna, að meira og minna hafa sveitarstjórnir um landið mótmælt, komið í pílagrímsferðir hingað til Alþingis til að kvarta undan því kerfi sem hefur verið við lýði öll þessi ár. Auðvitað er það misjafnt hvað menn hafa lagt sig fram um þau mótmæli.

Ég held reyndar líka að hv. þingmaður ætti að kynna sér það ögn betur hve mikið af veiðiheimildum hefur farið frá Akranesi, ef hann hefur ekki gert það þegar. Ég trúi varla að hann hafi gert það vel úr því að hann heldur því fram að allar vinnandi hendur séu að fara þaðan í burtu. Það eru a.m.k. fréttir sem ég hef ekki séð fram að þessu og er eitthvað nýtt. Ég ætla að vona að það gerist ekki. Hins vegar er engin trygging í þessu kerfi fyrir því að það gerist ekki og ég mun halda áfram að berjast gegn þessu fyrirkomulagi og umræddu kerfi. En ég átta mig ekki alveg á hvaða pólitíski leiðangur það er sem hv. þingmenn Frjálslynda flokksins eru í í dag. Ég gæti ímyndað mér að þetta væri einhver hluti af því að þeir ætluðu að reyna að böggla saman framboði á Akranesi. (Gripið fram í.)