Sveitarstjórnarmál.
Frú forseti. Já, það er nákvæmlega hárrétt að enginn veit hvert kvótinn fer á morgun og það á við alls staðar á landinu. Á meðan þetta fyrirkomulag er í gildi geta menn ekki haft neitt víst hvað varðar framtíðina um atvinnulífið í sjávarútveginum á hverju svæði.
Ég get tekið undir með hv. þingmanni, ég átta mig ekki alveg á því af hverju fólk í landinu hefur stutt svo vel við bakið á þeim flokkum sem eru núna í ríkisstjórninni. Það er a.m.k. ekki vegna þess að þeir fylgi stefnu sem falli þjóðinni í geð hvað varðar sjávarútvegsmál. Það hefur verið kannað betur en flest annað og niðurstaðan er einmitt sú að í einungis einum flokki nær stuðningur við kvótakerfið 50% og það er í Framsóknarflokknum. Í Sjálfstæðisflokknum meira að segja held ég að 70% hafi verið á móti fyrir um hálfu öðru ári í þeirri könnun sem þá var gerð og í Samfylkingunni 90%.
Ég verð að segja að mér finnst það ekki líklegt til vinsælda hjá Frjálslynda flokknum að ætla út á kvótakerfið til atlögu við okkur í Samfylkingunni. Ég veit ekki betur en við höfum andæft í því máli og barist fyrir breytingum á því allan tímann alveg frá því að hún varð til. Og ég held að þeir ágætu menn í Frjálslynda flokknum sem eru að væna okkur um að við séum ekki stöðugir í því stríði ættu að líta í eigin barm og fara yfir stefnu sína. Eins og hún var borin fram í síðustu kosningum getur hún ekki gengið í þeim næstu.