Sala Búnaðarbankans.
Frú forseti. Það hefur verið margt mjög ámælisvert við einkavæðingu helstu ríkisfyrirtækja á umliðnum árum og alltaf að koma nýjar og nýjar upplýsingar í ljós en það er eins og skíturinn fljóti alltaf upp á endanum og það verður erfitt fyrir þá flokka sem hafa staðið fyrir þessari framkvæmd að standa lengur í vegi fyrir því að fram fari óháð rannsókn á gerðum þeirra.
Í ljós hefur komið að ný rannsókn Vilhjálms Bjarnasonar, háskólakennara í Háskóla Íslands, hafi leitt í ljós að spunninn hafi verið lygavefur í kringum aðkomu þýskra banka að kaupum á Búnaðarbankanum. Það er mjög ámælisvert, sérstaklega í ljósi þess að kaupendurnir voru nátengdir Framsóknarflokknum, S-hópurinn. Þess vegna tel ég að hæstv. forsætisráðherra ætti í rauninni að svara því hér hvort hann ætli að láta fara fram athugun á sþessu ámæli sem hefur komið fram, þ.e. að þýski bankinn hafi í rauninni verið yfirvarp fyrir allt aðra kaupendur og hvort ekki sé orðið tímabært að fá hið rétta í ljós hvað varðar þetta mál.
Það er algerlega óverjandi að fara ekki ofan í saumana á þessu máli vegna þess að við erum að ræða um eigur almennings og hvernig þeim er ráðstafað til þeirra sem eru síðan nátengdir innsta kjarna annars stjórnmálaflokksins sem fer með völd á Alþingi. Það er alveg ólíðandi að það sé ekki á hreinu hver vinnubrögðin hafa verið í málinu.