Áætlun og aðgerðir um varnir gegn fuglaflensu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir ágæta umræðu um þetta mál. Ég reyni að svara því sem til mín hefur verið beint.
Varðandi aðstöðuna á Keldum, það mál er á dagskrá og þegar hefur verið gerð frumathugun á krufningar- og rannsóknaraðstöðu þar. Varðandi aðstöðuna á Landspítalanum þá hefur veirurannsóknarstofan á Landspítalanum aðstöðu til að rannsaka smitsjúkdóma í mönnum.
Varðandi svo eftirlitið sem kom fram hjá hv. þm. Magnúsi Þór Hafsteinssyni, honum var það hugleikið, þá er búið að gera áætlanir um kostnað við rannsóknir sýna úr villtum fuglum og alifuglum og sýnataka og rannsóknir eru hafnar og þeim verður haldið áfram en Landbúnaðarstofnun sér um þær sýnatökur og hefur tekið yfir verkefni yfirdýralæknis í því máli.
Varðandi fyrirspurn hv. 10. þm. Norðaust., Þuríðar Backman, um bólusetningar þá hefur þegar verið tekin ákvörðun um að áhættuhópar verði bólusettir við venjulegri inflúensu.
Ég vil að lokum segja að það er mjög áríðandi að halda vöku sinni í þessu máli og hafa hófstillta umræðu í því. Hv. 1. þm. Reykv. n. hitti kannski naglann á höfuðið þegar hann sagði: Enn þá er þetta inflúensa í dýrum en ekki í mönnum. En við verðum að halda vöku okkar og ég vil þakka það samstarf milli ráðuneyta sem hefur farið fram og ekki síst vil ég nefna dómsmálaráðuneytið í því en þeir hafa unnið mjög náið með okkur að (Forseti hringir.) skipulagningu og undirbúningi.