132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Raforkumálefni.

348. mál
[16:26]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa miklu skýrslu sem hæstv. iðnaðarráðherra leggur fram. Þar kemur í ljós að með breytingunum 2004–2005 hækkaði meðalraforkuverð heilmikið, í örfáum tilfellum lækkaði það en hækkaði allt upp í 24% hjá einstaka orkufyrirtækjum, Orkubúi Vestfjarða, í dreifbýli. Það er dálítið áhyggjuefni að upplifa á þeim tíma sem við gætum verið að lækka raforkuverð stórum stíl. Ef við hefðum haldið áfram að greiða niður þessar virkjanir hefðum við staðið uppi með fullborgaðar virkjanir og gætum verið að lækka raforkuverð mjög mikið. En í staðinn er haldið áfram á þeirri braut að selja raforku mjög ódýrt til álbræðslna og ég spyr: Er það ekki varhugavert að 78% af allri framleiðslu fari til þriggja álbræðslna árið 2008?