132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Raforkumálefni.

348. mál
[16:28]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Auðvitað er samhengi þarna á milli. Við sjáum að Landsvirkjun hefði getað verið að greiða niður sínar stóru virkjanir í staðinn fyrir að fara út í stórfelldar nýjar lántökur og við höfum staðið hérna uppi eftir ekki langan tíma með fullgreiddar virkjanir. Um þetta þarf eiginlega ekkert að deila.

Síðan langar mig aðeins til að spyrja hæstv. ráðherra í sambandi við 7. kafla skýrslunnar. Þar er merkileg samantekt á áhrifum stóriðjuframkvæmda. Sem betur fer er það viðurkennt sem við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum haldið fram allan tímann, að þessar stóriðjuframkvæmdir hafa rutt burt annarri iðnstarfsemi á Austurlandi. Er þetta ekki mjög alvarlegur hlutur? Síðan er það merkilega hér. Talað er um að spennu sé létt af vinnumarkaði því að flest starfsfólk við framkvæmdir á Austurlandi er erlent. Það var nú lagt upp með allt annað í upphafi vegna þess að þá var talað um að langstærsti hluti fólks sem mundi fá vinnu þarna yrði Íslendingar. En núna er þetta allt farið út í hafsauga.