132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Raforkumálefni.

348. mál
[16:30]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrir það fyrsta vil ég líka þakka fyrir þessa skýrslu. Það var eitt af meginverkefnum iðnaðarnefndar að fá það inn í lögin að iðnaðarráðherra skyldi skila Alþingi skýrslu sem hér hefur verið gert, og fyrir það ber að sjálfsögðu að þakka.

Það vekur athygli mína, virðulegi forseti, að skýrslan er unnin af starfsmönnum ráðuneytisins í samvinnu við sérfræðinga frá Orkustofnun, Landsneti og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands en ekki t.d. frá ASÍ og Neytendasamtökunum. ASÍ hefur bent á að í kjölfar breytinganna hefur heildarkostnaður meðalheimilis vegna raforkunotkunar hækkað um allt að 14% í þéttbýli og 33% í dreifbýli. Heildarkostnaður minni heimila hefur hækkað mun meira, eða um allt að 25% í þéttbýli og 48% í dreifbýli.

Virðulegi forseti. Ég hef mestan áhuga á að ræða að þessu sinni, vegna þess að tíminn er stuttur, um 2. kaflann í skýrslunni. Hann segir okkur hins vegar eitthvað um meðaltöl. Virðulegi forseti, ég vil spyrja hæstv. iðnaðarráðherra: Er það rangt sem hagdeild ASÍ fer hér með?