132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Raforkumálefni.

348. mál
[16:32]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að halda því fram að það sé rangt sem ASÍ fer með en þeir fara yfir mjög takmarkaða þætti og komast þess vegna að þessari niðurstöðu. Hins vegar held ég að það hljóti að vera óhætt að treysta því sem kemur frá Hagstofunni og varðar, eins og ég er margbúin að koma inn á, rafmagnshluta neysluverðsvísitölunnar. Það segir okkur að verðið hefur verið að lækka.

Við getum alveg farið yfir það í lengra máli á eftir, og ég reyndar kom inn á það í ræðu minni, hvar lækkaði og hvar hækkaði. Það á sér allt sínar skýringar. Hv. þingmaður þekkir þetta mál það vel að hann veit alveg að það eru skýringar á þessu öllu saman, hvers vegna sumir hækka og aðrir lækka. Við skulum ekki gleyma því að margir hafa lækkað en þeir hafa vissulega ekki eins hátt. Þeir sem eru að hækka eru t.d. dreifbýlið, bæði á svæði Rariks og Orkubús Vestfjarða vegna þess að (Forseti hringir.) fyrirkomulaginu var breytt, það var ekki jafnað út á því svæði.