132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Raforkumálefni.

348. mál
[16:41]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé ekki alveg rétt, þó að mér hafi nú ekki tekist að finna það í skýrslunni núna í fljótu bragði, að ekki sé talað um orkusparnað. Það er alla vega minnst á Orkusetrið sem var stofnað við útibú Orkustofnunar á Akureyri. Það hefur verið stofnað sérstakt Orkusetur sem hefur það hlutverk að stuðla að orkusparnaði og það er í samræmi við það sem allar aðrar þjóðir eru að gera, verkefnið er m.a.s. styrkt af Evrópusambandinu.

Síðan er það í sambandi við rammaáætlunina, þetta varðar jarðvarmann — ég náði kannski ekki alveg nógu vel því sem hv. þingmaður var að segja. Við erum, eins og hv. þingmaður veit, að vinna áfram að rammaáætlun, vissulega með svolítið öðru formi en áður var en meiningin er sú að leggja sérstaka áherslu á jarðvarmann í þeirri vinnu sem nú fer fram.