Raforkumálefni.
Hæstv. forseti. Þegar hv. þingmaður talar um að ríkisstjórnin haldi uppi þenslu þá vill svo til, og það kom fram í mínu máli, að það er verið að spá hagvexti í lok næsta árs upp á 2,4%, þannig að í skýrslunni sem er til umfjöllunar er nú ekki verið að gera ráð fyrir framkvæmdum sem eru þó í umræðunni.
Ég held að hv. þm. Ögmundur Jónasson, sem þingmaður Vinstri grænna, beri álíka mikla ábyrgð og sú sem hér stendur á því sem verið er að tala um. Það vill svo til að af hálfu Alcan í Straumsvík var skrifað undir viljayfirlýsingu við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á 40% af þeirri orku sem þarf. Fulltrúi Vinstri grænna í þeirri stjórn, sem er gjaldkeri flokksins, hvorki meira né minna, greinilega mikill peningamaður og hefur best innsýn í fjármál, styður það. Hvernig geta Vinstri grænir stutt það í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að farið sé í þessar framkvæmdir en verið á móti þeim þegar þær koma inn á Alþingi Íslendinga? Ég botna ekkert í því.
Við framsóknarmenn erum yfirleitt ekki með svona málflutning, eftir því hvað hentar. Það þýðir ekkert annað en að standa í báða fæturna og hafa einhverja stefnu og standa við hana, hvort sem maður er í sveitarstjórn og með sína fulltrúa þar eða hér á hv. Alþingi.