132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Raforkumálefni.

348. mál
[17:38]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við verðum nú ekki sökuð um það í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að standa ekki í fæturna og vera ekki sjálfum okkur samkvæm. Ég held að það saki okkur enginn um það og það á bæði við um aðild okkar að fyrirtækjum borgarinnar og á landsvísu.

Ég saknaði þess að hæstv. ráðherra svaraði spurningu minni varðandi upplýsingar um raforkuverð. Er það ekki rétt skilið hjá mér að upplýsingar um raforkuverð til stórfyrirtækjanna séu ekki uppi á borðum gagnstætt því sem hæstv. ráðherra hélt fram? (Gripið fram í.) Það eru viðskiptahagsmunir sem valda því að þessar upplýsingar eru ekki uppi á borði. En hæstv. ráðherra lýsti því yfir hér áðan að þetta væri allt saman uppi á borði og öllum aðgengilegt. Það er bara rangt, það er ekki svo.

Síðan held ég að Framsóknarflokkurinn geti ekki þvegið það af sér að fylgja öfgafullri stefnu í þessum efnum. Þetta er nokkuð sem ég held að allir séu farnir að viðurkenna, m.a.s. innan stjórnarsamstarfsins. Þeir eru farnir að orða þá hugsun að það beri að slá varnagla við þeim öfgum sem Framsóknarflokkurinn fylgir varðandi stóriðjuuppbyggingu á Íslandi.

Ég furða mig líka enn á því að hæstv. ráðherra geti staðhæft nákvæmlega um arðsemi af Kárahnjúkavirkjun löngu áður en henni er lokið og þegar vitað er að tafir eru að verða á framkvæmdinni sem valda verulegum útgjaldaauka.