Raforkumálefni.
Virðulegi forseti. Ég fagna yfirlýsingu hæstv. iðnaðarráðherra um að þrjú ráðuneyti fjölluðu um vanda fiskeldisins á landinu, sem er væntanlega sá vandi að raforkuverð hefur hækkað til þeirra eins og raun ber vitni. Forsvarsmenn þessara fyrirtækja hafa sagst ætla að loka m.a. út af því. Hæstv. ráðherra sagði að hún vænti þess að einhver niðurstaða kæmi út úr því máli. Ég vona, virðulegi forseti, að sú niðurstaða komi frá þessum þremur ráðuneytum að við munum áfram geta rekið fiskeldisfyrirtæki, haldið áfram á þeirri braut án ýmissa þeirra hindrana í vegi greinarinnar. Þar spilar margt inn í, m.a. ákvarðanir stjórnvalda, t.d. sterk króna. En þurfum við að sjá á eftir atvinnugreininni, að hún líði undir lok og við setjum upp tærnar á Íslandi og segjum: Því miður er ekki hægt að stunda fiskeldi á Íslandi vegna þess að kostnaðurinn við það er svo mikill, hvort sem það er raforkan, gengisskráningin eða aðrir þættir í rekstri þessara fyrirtækja. Ég vona, virðulegi forseti, að við Íslendingar getum áfram rekið fiskeldi og flutt út fisk alinn í eldisstöðvum, hvort það yrði lax eða annað. Ég vona það sannarlega.
Virðulegi forseti. Ég geri ekki ráð fyrir því að ég og hæstv. ráðherra verðum sammála um raforkulögin og hverju breytingarnar á þeim hafa komið til leiðar. Það sem ég gagnrýni langmest snýr að íbúum dreifbýlisins sem síst máttu við þessari hækkun. Ég spyr enn þá, vegna þess að stjórnvöld eiga tæki til að koma til móts við þetta en nota þau ekki. Það stendur upp á hæstv. iðnaðarráðherra og ríkisstjórnina að finna út úr hvernig brugðist verði við þannig að ekki sé ráðist á fólk sem býr í dreifbýli með áðurnefndum hækkunum.