Skýrsla um notendagjöld hjá TR -- ummæli sjávarútvegsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins til að ræða annað mál en hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Ég vil eiga orðastað við hæstv. sjávarútvegsráðherra. Hann fór í mikla Bjarmalandsför í síðustu viku til Noregs og hélt þar ræðu og var síðan í viðtölum við fjölmiðla um ýmis málefni sem varða hagsmuni okkar Íslendinga, mikla hagsmuni okkar Íslendinga.
Fyrir það fyrsta hélt ráðherrann ræðu og lýsti því yfir á opinberum vettvangi í Noregi að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið og svokölluð þrískipting þess — það er eitthvað nýtt hjá ráðuneytinu núna, einhver þrískipting kerfisins — hefði lagt grunninn að traustum, góðum og arðvænlegum atvinnuvegi auk þess að stuðla að eflingu byggðar í sjávarþorpum. Þessi ræða var á ensku en í henni var sem sagt talað um þrískiptingu kerfisins og hinar miklu hagsbætur sem hún hefði haft í för með sér.
Nú er það ekkert nýtt í sjálfu sér að íslenskir ráðherrar ferðist um á alþjóðavettvangi og fari þar með hrein ósannindi um þetta kerfi og hvaða áhrif það hefur haft á Íslandi. Það er að sjálfsögðu mjög alvarlegur hlutur. Hitt er þó verra að í þessari ræðu fullyrti ráðherrann að hér væri búið að afgreiða lög frá hinu háa Alþingi sem hafa þó aðeins farið í gegnum 1. umr. og eru núna til meðferðar í sjávarútvegsnefnd. Mér finnst ráðherrann hafa sýnt þinginu mikla lítilsvirðingu með því að gefa það út að hér væri búið að samþykkja eitthvað sem ekki er staðreynd. Það er mjög vont mál.
Fyrir það þriðja kom ráðherrann með yfirlýsingar varðandi Svalbarðasvæðið. Hann féllst þar á fiskveiðistjórn Norðmanna í Barentshafi sem ég tel að sé alvarlegur hlutur, óþarfa eftirgjöf til Norðmanna að viðurkenna eitthvað af þessu tagi í mjög viðkvæmri deilu sem snýst kannski um okkar stærsta utanríkismál.
Í fjórða lagi finnst mér mjög gagnrýnisvert að ráðherrann lýsti því yfir að við Íslendingar yrðum að fallast á skerta hlutdeild í norsk-íslenska síldarstofninum sem er mjög slæmt mál núna þegar stofninn er að stækka mjög hratt. Það er alger óþarfi að rétta Norðmönnum litla fingurinn með þeim hætti.