Skýrsla um notendagjöld hjá TR -- ummæli sjávarútvegsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil endurtaka það sem ég hef áður sagt að skýrsla sú sem hér um ræðir er aðgengileg. Við ætluðum okkur að halda einn vinnufund í viðbót um hana áður en hún færi út á netið en hins vegar hefur hún verið afhent þeim sem um hana hafa beðið og þar á meðal fjölmiðlum. Það er rangt að fjölmiðlar hafi ekki fengið hana, þeir hafa fjallað um hana og fengið hana.
Ég heyri að hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir hefur fengið skýrsluna og myndað sér skoðanir á henni. Ég er nú dálítið undrandi þegar ég heyri hve menn eru sammála um að fórna eigi öllum jöfnuði fyrir einföldun í kerfinu. Eigum við að hætta að gefa afslætti fyrir aldraða, (ÁRJ: Það þarf umræðu um þetta.) öryrkja eða langveik börn eins og við gerum núna? Mig undrar þau viðhorf sem hér koma fram. Það er einmitt þetta sem ég vildi fá nánari skýringar á hjá sérfræðingum Tryggingastofnunar, því að þarna er um grundvallaratriði í velferðarkerfinu að ræða. Ég undrast þá jafnaðarmennsku sem kemur fram í þessari umræðu. (Gripið fram í.) Er þetta einhver ný jafnaðarmennska? Ég verð að segja að ég er alveg hissa á henni.
En skýrsluna getur hver fengið sem um hana biður og hún kemur út á netið þegar við höfum fjallað um hana. Heilbrigðis- og trygginganefnd þingsins getur fengið hana hvenær sem er til umfjöllunar og ég er tilbúinn að ræða hana áfram hvenær sem vera skal.