132. löggjafarþing — 71. fundur,  21. feb. 2006.

Mörg umræðuefni í athugasemdum um störf þingsins.

[14:05]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það var samkomulag á milli þingflokksformanna að unnt væri að taka hér upp málefni sem væru í brennidepli undir liðnum athugasemdir um störf þingsins, sem yrðu nokkurs konar utandagskrárumræða vegna þess að þegar menn hafa verið að biðja um utandagskrárumræður um mál sem eru í brennidepli höfum við þurft að bíða kannski í hálfan mánuð, þrjár vikur, mánuð, eftir að koma málinu að. Þá er augnablikið löngu liðið sem þurfti að ræða málið.

En ég verð að segja, virðulegi forseti, að ég var að tala um störf þingsins í þessu máli mínu áðan. Vegna þess að upplýsingar hafa komið frá sérfræðingum ríkisstofnunar sem heyra undir hæstv. heilbrigðisráðherra um það hvernig lagasetning héðan og reglugerðir sem eru heimilaðar héðan, hafa bitnað á þeim sem þurfa á þjónustunni að halda. Þetta eru upplýsingar sem hafa ekki verið mönnum aðgengilegar, þessi samantekt, fyrr en núna, segir hæstv. ráðherra, þó þetta sé ekki komið á netið. Ég var að óska eftir að þingið kæmi að þeirri vinnu. Þetta yrði skoðað í þeirri nefnd sem málið varðar sem er heilbrigðis- og trygginganefnd. Hún tæki þessa skýrslu til skoðunar. Fengi um hana allar upplýsingar og mundi síðan meta hvort ætti að gera einhverjar lagabreytingar í kjölfarið.

Ég var ekki að segja, hv. þm. Siv Friðleifsdóttir, að hæstv. ráðherra hefði stungið þessum upplýsingum undir stól, heldur sagði ég að slíkum upplýsingum mætti ekki stinga undir stól því það er skylda okkar þingmanna þegar koma svona alvarlegar athugasemdir um lagasetningu héðan, þá ber okkur að fara yfir hana og athuga hvort ástæða sé til að gera á henni breytingar, sem ég er sannfærð um að þurfi að gera. En við þurfum auðvitað að vega það og meta í heilbrigðis- og trygginganefnd hvernig við gerum það. Því eins og lagasetningin er í dag gagnast hún ekki öllum sem þurfa á þeim stuðningi að halda sem almannatryggingarnar ættu að bjóða upp á.