Mörg umræðuefni í athugasemdum um störf þingsins.
Frú forseti. Svo það sé alveg skýrt í þessari umræðu var ég að gera athugasemd við fundarstjórn forseta vegna þess að það var fleira en eitt mál undir í liðnum um athugasemdir um störf þingsins. Ég tel það hvorki gera þingstörfin skýrari né sé málefnunum til framdráttar að stýra fundi með þeim hætti. Þess vegna beindi ég því til forsætisnefndar og þingflokksformanna að athuga með hvaða hætti mætti greiða úr þessu. Hvað síðan hefur verið sagt um utandagskrárumræður og annað í störfum þingsins má auðvitað segja að þegar þessi liður um störf þingsins endar oftast með því að hæstv. ráðherrar fái síðasta orðið, þá er liðurinn ekki orðinn mjög ólíkur utandagskrárumræðum.
Vegna þess sem sagt var um málgleði stjórnarandstöðuþingmanna er, held ég, hollt fyrir alla hér að hafa í huga að stjórnarliðar verða ekki alltaf stjórnarliðar og stjórnarandstöðuþingmenn verða ekki alltaf stjórnarandstöðuþingmenn. Hv. þingmenn verða að hafa þá yfirsýn að geta hugsað málið án tillits bara til sín eða síns flokks, heldur til starfa þingsins í heild.