Aukatekjur ríkissjóðs.
Frú forseti. Ég vil snúa aftur að frumvarpinu og hætta að tala um skatta. Ég tek það fram að ég fagna þessu frumvarpi og tel þetta vera mjög jákvætt skref. Það á að vera auðvelt á Íslandi að stofna fyrirtæki. Þegar lágmarkshlutafé t.d. í einkahlutafélagi er 500.000 kr. þá er náttúrlega bara algjörlega ótækt að þeir sem stofna fyrirtæki borgi um 20% af þessu hlutafé beint til ríkisins strax í upphafi.
Hv. þingmenn hafa hér sagt í ræðustóli að ekki megi auðvelda stofnun fyrirtækja vegna hættu á kennitöluflakki. Ég tel og mér skilst að rannsóknir bendi líka til þess að meginhluti, langstærsti hluti þeirra sem stofna fyrirtæki og standa í fyrirtækjarekstri geri það af miklum heilindum. Þeir eru ekki að standa í neinu kennitöluflakki. Það er kannski frekar að það sé tengt ákveðnum atvinnugreinum. Við eigum að nota aðrar leiðir, alveg eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talaði um, til að koma í veg fyrir það. En við eigum ekki gera þetta við upphaf rekstursins og gera ráð fyrir að fyrirtæki muni standa sig illa eða fara á hausinn.
Ég hins vegar leyfi mér að vera ósammála hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni og hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni um stuðningssjóði við atvinnulífið. Flestir stuðningssjóðir eru yfirleitt hugsaðir til þess að aðstoða þá sem hafa viðskiptahugmynd, raunverulega áður en fyrirtækið verður til, til að reyna að sjá hvort eitthvert vit sé í viðkomandi hugmynd eða ekki og stoppa hana þá af. Ég tel því að þeir gagnist mjög vel til þess af því að það kemur hugsanlega í veg fyrir að fyrirtækið fari á hausinn seinna meir.
Ég bara ítreka ánægju mína með þetta frumvarp og ég vona að það verði að lögum sem allra fyrst.