Framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð.
Frú forseti. Það er í sjálfu sér ágæt hugsjón hjá ungum framsóknarmanni að vilja byggja framhaldsskóla á Siglufirði til að kenna bridge en ég veit samt sem áður að hv. þingmanni gengur gott eitt til og hann hefur lagt ástríðu og góða hugsun og vandvirkni í þá þingsályktunartillögu sem hann flytur hér.
Ég hef áður lýst því yfir í þessum stóli að ég styð mjög eindregið allt sem hægt er að gera til að efla og treysta byggð á Siglufirði, sem ég hef hlýjan hug til, eins og hv. þingmaður hefði komist að raun um hefði hann hlustað á predikun mína í Siglufjarðarkirkju á síðastliðinni aðventu. Ég las greinargerð hv. þingmanns, hún er býsna góð og þar eru færð mjög sterk rök fyrir framhaldsskóla. Þess vegna finnst mér dálítið merkilegt að heyra hv. þingmann tala fjálglega og lofa og prísa hæstv. menntamálaráðherra vegna þess að hún hafi sett á laggir nefnd til að kanna hvort stofna eigi framhaldsskóla á Siglufirði. Er ekki svo að ég og hv. þingmaður séum báðir algjörlega sannfærðir um að öll rök liggi þegar fyrir sem styðji að það verði gert?
Hefur hv. þingmanni hugkvæmst, eftir að hafa barist hér lengi ásamt öðrum þingmönnum fyrir þessu þjóðþrifamáli, að það kynni svo að vera að hæstv. menntamálaráðherra væri í þessu efni eins og ýmsum öðrum að tefja fyrir framgangi góðra mála sem ungir framsóknarmenn og aldnir bera fyrir brjósti? Ég verð líka að segja að mér finnst það með ólíkindum að hv. þingmaður skuli tala um að hann vonist til að fá jákvæð svör við spurningum sínum til hæstv. menntamálaráðherra um það hvort haft verði samráð við heimamenn. Gefur það ekki augaleið, ef hæstv. ráðherra hefur einhvern hug á þessu máli, að hún hafi samráð við heimamenn?
Við eigum ekki, ég og hv. þingmaður, að lúta að svona litlu. Þetta er mál sem við berjumst fyrir hvað sem líður töfum Sjálfstæðisflokksins á þessu máli.