132. löggjafarþing — 71. fundur,  21. feb. 2006.

Mat á mannaflaþörf í atvinnugreinum.

67. mál
[17:42]
Hlusta

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar á þskj. 67, um mat á framtíðarhorfum og mannaflaþörf í atvinnugreinum, sem ég flyt ásamt hv. þm. Hjálmari Árnasyni, Ögmundi Jónassyni, Einar Má Sigurðarsyni, Magnúsi Þór Hafsteinssyni, Björgvini G. Sigurðssyni, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Dagnýju Jónsdóttur og Katrínu Júlíusdóttur.

Af því hverjir flytja þetta mál má segja að allbærileg samstaða sé um þetta mál hér á hv. þingi.

Í tillögunni segir:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta kanna reglubundið mannaflaþörf og framtíðarhorfur í atvinnugreinum með það að markmiði að meta atvinnumöguleika námsmanna eftir námsleiðum og efla þannig ráðgjöf við nemendur í framhalds- og háskólanámi.

Verkefnið verði samvinnuverkefni Vinnumálastofnunar og Samtaka atvinnulífsins. Samráð verði haft við náms- og starfsráðgjafa í háskólum og Félag náms- og starfsráðgjafa um tilhögun og framtíðarþróun verkefnisins.

Félagsmálaráðherra leggi eigi síðar en á haustþingi 2006 skýrslu fyrir Alþingi um tilhögun verkefnisins og kostnað við það sem greiðist af ríkissjóði.“

Ég vil fylgja þessari tillögu úr hlaði með nokkrum orðum, virðulegi forseti.

Það er alveg ljóst að frumkvöðlastarf og nýsköpun atvinnulífsins hefur átt mikinn þátt í að bæta lífskjör og auka atvinnuöryggi landsmanna. Aukin menntun, hvort sem er í bók-, iðn-, tækni- eða starfsnámi, verður sífellt mikilvægari í þekkingarsamfélagi nútímans og eykur á fjölbreytileika atvinnulífsins, skapar ný verkefni og tækifæri í atvinnuuppbyggingu og framþróun samfélagsins. Í þessari öru þróun er mikilvægt að hafa heildarsýn yfir framtíðarhorfur og mannaflaþörf í einstökum atvinnugreinum. Það hefði mikið gildi, bæði fyrir atvinnulífið og skipulega uppbyggingu menntakerfisins, og væri ekki síst mikilvægur stuðningur við námsmenn til að meta atvinnumöguleika með hliðsjón af námsvali.

Skortur á framtíðarsýn í hverri atvinnugrein gerir það að verkum að fólk sem stendur frammi fyrir námsvali getur ekki gert sér ljósa grein fyrir atvinnumöguleikum sínum að námi loknu né heldur á hvaða starfssviðum menntun þeirra getur nýst og færni komið að gagni. Ljóst er að slík framtíðarsýn væri mikill fengur fyrir þá sem ætla að velja sér nám eða starf, sem og fyrir atvinnulífið og þjóðfélagið í heild. Með aðgengilegum upplýsingum um þarfir atvinnulífsins fyrir menntað vinnuafl væri stuðlað að meira jafnvægi á eftirspurn í ýmsar atvinnugreinar og menntun og mannauður nýttist þannig betur, bæði fyrir námsmenn og þjóðarbúið í heild. Upplýsingar um mannaflaþörfina eru afar mikilvægar og mundu leiða til þess að öll náms- og starfsráðgjöf skilaði meiri árangri og yrði markvissari. Upplýsingar og ráðgjöf sem byggðust á spá um þróun mannaflaþarfar í einstökum atvinnugreinum mundu gagnast til að beina menntuðu vinnuafli í þær greinar þar sem mest er þörf fyrir það í framtíðinni.

Við undirbúning þessarar tillögu var m.a. leitað til námsráðgjafar Háskóla Íslands en þar hefur starfsfólk gegnum árin sárlega fundið fyrir skorti á upplýsingum um þróun vinnumarkaðarins. Á það var m.a. bent að hvergi væru til á einum stað upplýsingar um hversu margir eru starfandi í einstökum atvinnugreinum og hverjar þarfirnar yrðu eftir einhvern tiltekinn tíma í einstökum atvinnugreinum, en val einstaklinga um framhaldsnám væri nátengt starfsupplýsingum og þekkingu á vinnumarkaðnum. Fram til þessa hafi einstaklingar ekki getað reitt sig á áreiðanlegar upplýsingar heldur frekar fylgt tilfinningu um hvort og hvar yrði þörf fyrir þeirra þekkingu í framtíðinni. Námsráðgjöf Háskóla Íslands taldi því brýnt að láta kanna reglubundið mannaflaþörf og framtíðarhorfur í hinum ýmsu atvinnugreinum.

Með þeirri miklu breytingu sem orðið hefur á atvinnulífinu á umliðnum árum hefur námsráðgjöf innan allra háskóla farið vaxandi, en mest áhersla er þar lögð á leiðbeiningar í náminu og að sinna margvíslegum sérþörfum nemenda. Sú námsráðgjöf sem er til staðar er auðvitað ákaflega mikilvæg til að leiðbeina nemendum og einnig sú veigamikla kynning á námsleiðum sem háskóladeildir standa fyrir í framhaldsskólunum. Mikilvægt er að framhaldsskólanemendur hafi haft tækifæri til að ígrunda vel náms- og starfsval sitt þegar kemur að háskólanámi. Félag náms- og starfsráðgjafa hafa lagt áherslu á að innan framhaldsskólans vanti meira svigrúm til að sinna náms- og starfsvali, en það gæti einmitt verið liður í námsferli framhaldsskólastigsins að kynna mannaflaþörf og framtíðarhorfur í ýmsum starfsgreinum.

Einnig má benda á að gerðar hafa verið skýrslur um tekjur eftir atvinnugreinum. Mikið hefur þó skort á allar tölfræðilegar upplýsingar um framtíðarhorfur í mismunandi starfsgreinum. Alla heildaryfirsýn og samvinnu við samtök atvinnulífsins vantar og skort hefur að skipulega hafi verið farið í að þróa líkan eða leggja mat á framtíðarhorfur í einstökum starfsgreinum sem hugsanlega væri hægt að endurmeta með ákveðnu millibili með tilliti til framboðs og eftirspurnar á vinnumarkaði bæði innan lands og utan.

Á vegum OECD hefur sérstök áhersla verið lögð á starfsráðgjöf og stefnumörkun á því sviði. Í handbók OECD um starfsráðgjöf kemur m.a. fram að í sumum löndum séu starfsupplýsingar hvorki nægilega yfirgripsmiklar né vandaðar. Það komi í veg fyrir að fólk geti tekið vel ígrundaðar ákvarðanir er varða starfsferil þeirra. Víða í starfsgreinum sé skortur á sérhæfðu vinnuafli og í mörgum tilfellum viti fólk ekki um manneklu eða skort á starfsfólki í einhverjum atvinnugreinum. Í upplýsingum OECD um starfsráðgjöf er lögð áhersla á að upplýsingar liggi ávallt fyrir um störf á vinnumarkaði í því skyni að nýta þær til leiðbeiningar við starfsval.

Gögn frá 29 Evrópulöndum sýna einnig að ráðgjöf og markvissar upplýsingar um starfsval eru að aukast og einsýnt að það gagnist ekki aðeins einstaklingunum sjálfum heldur þjóðfélaginu í heild. Ráðgjöfin sé því mjög góð leið til að ná fram ákveðnum markmiðum í almannaþágu. Í því sambandi er bent á að markviss ráðgjöf sem byggist á framtíðarhorfum í atvinnugreinum geri menntun og þjálfun skilvirkari og tengi betur saman menntun og atvinnu, bæði á innlendum vettvangi og um alla Evrópu. Þessi jákvæða þróun opni augu fólks fyrir nýjum möguleikum og geri því kleift að taka vel ígrundaðar ákvarðanir, sem skili sér í bættum lífskjörum. Þessi leið stuðli að jafnvægi í framboði og eftirspurn eftir vinnuafli og bæti þannig stöðugleika á vinnumarkaði og nýtist í baráttunni við atvinnuleysi og auki hreyfanleika á vinnumarkaðnum. Þannig megi bæta afköst og skilvirkni vinnumarkaðarins, auk þess að nýtast vel við vinnumarkaðsaðgerðir hins opinbera, m.a. í því skyni að efla menntun og þjálfun þeirra hópa sem lakast standa á vinnumarkaðnum.

Miklar breytingar hafa orðið á atvinnulífinu á undanförnum árum, ekki síst með tilliti til aukinnar tækniþróunar og alþjóðavæðingar. Samfara því hefur fjölbreytni í atvinnulífinu stöðugt vaxið og gífurlegar umbreytingar orðið á ýmsum sviðum atvinnulífsins sem m.a. kalla á að farin verði sú leið sem lögð er til í þessari tillögu.

Virðulegi forseti. Loks er ástæða til að nefna sem rökstuðning fyrir gagnsemi þessarar tillögu, komist hún til framkvæmda, að Evrópusambandið hefur lagt mikla áherslu á ráðgjöf um nám og starfsval og haldið því fram að slík ráðgjöf væri lykill að framþróun fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild. Í ályktun frá námsstefnu Félags náms- og starfsráðgjafa frá maí á þessu ári kemur líka fram að víða um heim sé litið á markvissa náms- og starfsráðgjöf sem lykil að framþróun í mennta- og vinnumarkaðsmálum, almenningi til heilla. Jafnframt kemur fram í ályktuninni að stórefla þurfi vinnumarkaðsrannsóknir til að spá fyrir um framtíðarþróun og þörf fyrir vinnuafl.

Ég sé ekki ástæðu, virðulegi forseti, til að hafa frekari orð um þetta mál. Eftir að það var lagt fram kom fram álit frá námsráðgjöfum um þessa tillögu og reyndar fleiri sem hér liggja fyrir þinginu þar sem mjög var tekið undir efni tillögunnar og er það von mín sem flutningsmanns að hún fái góðar undirtektir á hv. Alþingi. Legg ég til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til síðari umr. og hv. menntamálanefndar.