Staða útlendinga hér á landi.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka þessa umræðu. Ég held að hún hafi verið mjög tímabær og ágætt að koma henni hér inn í sali Alþingis. Við hljótum ávallt að gera ráð fyrir að nýir íbúar landsins fái tækifæri til að aðlagast íslensku samfélagi. Til þess eigum við að beita öllum ráðum. Við eigum að minnka hættu á árekstrum á milli fólks af ólíkum menningaruppruna og við verðum að gera ráð fyrir að upplýsingar og fræðsla dugi jafnan best í því skyni. Ég held að mörg slys í umfjöllun fjölmiðla á Vesturlöndum um trúarbrögð og menningarsamfélög fjarlægra þjóða hefði mátt forðast með meiri þekkingu á lífsháttum þeirra þjóða.
Það er víða stefnt að því í löggjöf okkar að aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi sé sem mest. Það er t.d. gert ráð fyrir sérstakri íslenskukennslu fyrir útlendinga í grunnskólum og úthlutun jöfnunarsjóðs tekur m.a. mið af auknum kostnaði sveitarfélaga því samfara. Upplýsingaflæði til útlendinga sem búa hér á landi er sífellt að aukast og vil ég þá sérstaklega nefna Fjölmenningarsetrið á Ísafirði sem er tilraunaverkefni. Ég fagna því að hæstv. ráðherra nefndi það hér að tími væri kominn til að festa Fjölmenningarsetrið í sessi. Stofnunin heldur úti mjög öflugri heimasíðu þar sem gefnar eru upplýsingar til útlendinga á fjórum tungumálum þannig að í þessari stofnun er unnið er mjög líflegt og gott starf. Ég tek undir það að ánægjulegt var að sjá að Laxnessfjöðrin fór til nýbúa í Austurbæjarskólanum og það eru mörg önnur skemmtileg verkefni eins og þjóðahátíð á (Forseti hringir.) Vestfjörðum og Austfjörðum sem hefur (Forseti hringir.) skilað mjög miklu í samskiptum þjóða sem búa á Íslandi.