132. löggjafarþing — 72. fundur,  22. feb. 2006.

Málefni heilabilaðra.

370. mál
[13:11]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir umræðuna og greinargóð svör um fjölda sérdeilda á rýmum fyrir heilabilaða. En um leið vil ég skora á hæstv. ráðherra að hrinda úr vör áætlanagerð í þessum málum af því að það vantar mjög mikið upp á að við höfum náð landi eða að viðunandi stöðu sé náð í þessum málaflokki.

Eins og ég gat um áðan og eins og hv. þm. Jóhann Ársælsson sagði þá skortir mikið á greiningu sjúkdómsins. Miklu fleira yngra fólk þjáist af einhvers konar heilabilun en nokkurn tíma áður, t.d. vegna áverka, slysa eða neyslu fíkniefna, löglegra eða ólöglegra. Staðan hefur breyst í þessu máli og það mun breyta lífi mjög margra fjölskyldna ef hægt er að grípa inn í ferlið og miðla þekkingu og umönnun til einstaklinga og fjölskyldna.

Fræðslu um heilabilun og álíka sjúkdóma er mjög ábótavant hjá umönnunarstéttum. Það kemur skýrt fram í samtölum við umönnunarstéttir að þar mætti gera margt betur, sérstaklega til að koma í veg fyrir að til einhvers konar ofbeldisaðgerða þurfi að grípa í umönnun við mjög erfiða sjúklinga. Þetta er oft mjög erfitt við að eiga og fræðsla og þekking til umönnunarstétta og fjölskyldna heilabilaðra skiptir þarna grundvallarmáli, aukning þekking í þessum málum. Og þá ekki síður aðgerðir til að greina einstaklinga með heilabilunareinkenni og veita þeim aðstoð. Ég tel því að heildarstefnumótun í málefnum heilabilaðra sé mjög áríðandi. Það er mikilvægt að henni verði hrint úr vör og það yrði gæfuspor að ráðast í þær aðgerðir og mundi efla velferðarstefnu og velferðarþjónustu hér á landi. Ég varð var við það þegar ég hóf þessa umræðu fyrr í haust að þetta vakti athygli margra og snerti marga. Þetta er mikilvægur málaflokkur sem við þurfum að vinna vel í.