Innflutningur á landbúnaðarvörum.
Hæstv. forseti. Það er hátíðisdagur á Íslandi í dag. Ég er að koma frá setningu mikillar hátíðar sem haldin er þessa dagana í fimmta sinn, Food and Fun, hátíð, sem er sem sé matur og gleði, sem ég og forstjóri Icelandair opnuðum á Hótel Nordica. Tugir blaðamanna, 50–60 blaðamenn alls staðar úr veröldinni munu koma. Meistarakokkar eru komnir til landsins, sex frá Ameríku og sex frá Evrópu og íslensku meistarakokkarnir eru í essinu sínu þessa daga. Veitingahús í Reykjavík eru troðfull kvöld eftir kvöld af fólki sem fer út að borða með fjölskyldum og vinum. Þetta segir okkur að íslenskur matur, heilbrigður og hollur, er „inn“ á Íslandi í dag, er eftirsóttur og vekur nú nýja athygli um allan heim. Þess vegna er fagnaðarefni að fá slíka fyrirspurn á þessum degi og hún þarf auðvitað að vera eilíf. Við þurfum að spyrja okkur að því af mikilli varkárni og varúð. Íslensk stjórnvöld og Íslendingar verða að verja þessa dýrmætu auðlind.
Heiminum hefur verið ljóst í 70–80 ár að hafið við Ísland gefur besta fisk heimsins og er viðurkenndur sem slíkur. En núna er það að gerast að íslenskur landbúnaður fær mikla viðurkenningu fyrir sitt mikla hráefni hvort sem það eru lambið, mjólkin, osturinn, skyrið, smjörið. Allt vekur þetta mikla athygli og bak við fiskinn er sjómaðurinn, bak við landbúnaðinn er bóndinn og fjölskylda hans og landbúnaður sem vekur athygli fyrir að vera unninn af höndum fjölskyldu, sem er ekki stór í sniðum, er troðfullur af gæðum. Þess vegna er mikilvægt að Íslendingar standi vörð um þessa auðlind með því að varast það að hingað berist sjúkdómar og þar höfum við mikla sérstöðu þegar við horfum til veraldarinnar.
Þess vegna er svar mitt við fyrstu spurningu hv. þingmanns þetta: Afstaða mín er óbreytt frá því sem verið hefur, þ.e. að varast ber innflutning á kjöti frá löndum þar sem gin- og klaufaveiki hefur greinst og veikinni hefur ekki verið að fullu útrýmt. Í Argentínu er bólusett gegn gin- og klaufaveiki og veikin gerir reglulega vart við sig. Að óbreyttu tel ég ekki forsendur til að heimila innflutning á kjöti frá Argentínu sem getur borið smitefni hingað.
Svar mitt við hinni síðari spurningu er svo: Þegar eru í gildi mjög strangar reglur um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, samanber reglugerð nr. 509/2004 sem sett er með heimild í lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Innflutningur á vörum sem geta borið með sér smitefni er valda sjúkdómum er háður leyfi landbúnaðarráðherra sem byggir ákvörðun sína á umsögn yfirdýralæknis. Meðmæli yfirdýralæknis varðandi sjúkdómavarnir byggjast á áhættumati sem m.a. tekur mið af listum Alþjóðaheilbrigðisstofnunar dýra varðandi A- og B-sjúkdóma og annarra alþjóðlegra staðla og leiðbeininga. Þetta fyrirkomulag tryggir að ákvörðun um innflutning á bestu fáanlegu upplýsingum um sjúkdómastöðu í útflutningsríkjum hverju sinni.
Afstaða mín er því óbreytt, hæstv. forseti. Okkur ber alltaf að fara að með fyllstu varúð. Í upphafi ræðu minnar minntist ég enn eina ferðina á það hversu íslenskur landbúnaður er að verða viðurkenndur af meistarakokkum, af fjölmiðlafólki, af ferðamönnum sem einstakt matvælaland. Það litla land sem liggur á milli Ameríku og Evrópu býr yfir mikilli sérstöðu hvað varðar afurðir landsins og sjávarins. Þess vegna er það auðlind sem okkur ber skylda til að hafa stranga löggjöf í kringum hvernig við flytjum hér inn afurðir. Lifandi dýr megum við aldrei flytja hingað beint inn hvað búfjárstofnana varðar og okkur ber þess vegna að standa af mikilli varúð að þessu öllu og það mun ég gera.