132. löggjafarþing — 72. fundur,  22. feb. 2006.

Innflutningur á landbúnaðarvörum.

524. mál
[13:43]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þuríði Backman fyrir að bera fram þessa fyrirspurn til hæstv. landbúnaðarráðherra. Við fengum langan inngang að stuttu svari og ánægjulegt að hæstv. landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, hafi verið að opna mikla matarhátíð með forstjóra Icelandair og er ástæða til að auglýsa það hér.

Þetta leiðir vissulega hugann að öðru, þ.e. hreinleika og gæðum íslensks landbúnaðar sem hæstv. landbúnaðarráðherra kom mjög inn á, og auðvitað ættum við að leggja áherslu á þennan hreinleika landbúnaðarins og lífræna ræktun. En við getum ekki gert allt í senn, verið að byggja upp eiturspúandi álver í hverjum firði og ætla síðan að setja hreinleika landbúnaðarafurða í forgang. Ég bið hæstv. landbúnaðarráðherra að athuga þetta.