Innflutningur á landbúnaðarvörum.
Hæstv. forseti. Samkvæmt lögunum er valdið og ábyrgðin ráðherrans. Hann getur tekið aðra ákvörðun og ber að gera það ef samviska hans segir það og ég hef margsinnis gert það sem ráðherra. Þessi innflutningur byggist oft á alþjóðlegum samningum sem okkur ber að fara að og það sýnir bara hve vandasamt og mikilvægt er að standa rétt að þessu. Allar reglur, lög og samningar sem gera þetta skýrara auðvelda baráttu okkar. Ég get tekið undir það.
Hér kom hv. þingmaður vinstri grænna, varaþingmaður, og sagði að álver í hverjum einasta firði ógnuðu landbúnaðinum. Ég taldi firðina. Eitt álver er í Straumsvík, eitt í Hvalfirði og verið er að byggja eitt á Reyðarfirði. Svo geta menn talað eins og verið sé að byggja álver í hverjum einasta firði á Íslandi. Sjá ekki allir í gegnum slíka blekkingu? Jú, það er verið að stækka þau sem fyrir eru en það liggur ekkert fyrir um nýframkvæmdir. Slíkur málflutningur dæmir sig auðvitað sjálfur. En ég get tekið undir það með hv. þingmanni að auðvitað þurfum við að halda utan um náttúru og hreinleika Íslands. Það er viðurkennt á alþjóðavísu að þar stöndum við fremstir í flokki og fyrir það höfum við hlotið viðurkenningu. Þess vegna er mikilvægt að halda utan um það og fara af varúð hvar menn setja niður verksmiðjur og hvernig menn byggja landið því að dýrmætasta auðlindin sem við eigum eru þessi tvö lífbelti, hafið bláa og landið græna, sem gefa af sér frábærar vörur í höndum bænda og sjómanna og okkar fræga fólk í matreiðslu, bæði á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs, vinnur þar mikil afrek fyrir hönd þjóðarinnar. Íslenskur landbúnaður sýnir að hann er talinn einn fremsti í heiminum hvað hreinleika og gæði varðar og utan um þann eiginleika vil ég halda fast.