132. löggjafarþing — 73. fundur,  22. feb. 2006.

Þróunarsamvinna Íslands við önnur ríki.

137. mál
[14:18]
Hlusta

Flm. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um skipan nefndar sem móti stefnu á sviði þróunarsamvinnu Íslands við önnur ríki. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þm. Siv Friðleifsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Magnús Þór Hafsteinsson og Guðrún Ögmundsdóttir. Eins og heyra má, hæstv. forseti, eru hér þingmenn úr öllum flokkum sem eiga sæti á hinu háa Alþingi. Í tillögugreininni segir, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd fimm sérfræðinga sem móti stefnu Íslands í þróunarsamvinnu við fátæk ríki. Eftirtaldir aðilar tilnefni einn fulltrúa hver til setu í nefndinni: mannfræðiskor Háskóla Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, Þróunarsamvinnustofnun Íslands og utanríkisráðuneytið en fulltrúi þess gegni jafnframt formennsku. Nefndin ráði sér starfsmann og utanríkisráðherra skili Alþingi skýrslu um niðurstöður hennar innan árs frá samþykkt tillögu þessarar.

Nefndin hafi fimm atriði að leiðarljósi við störf sín, stefnumótun og forgangsröðun. Þau eru þessi:

1. Nauðsyn þess að efla menntun, mannréttindi og frelsi kvenna og stúlkubarna um allan heim.

2. Nauðsyn þess að styðja við uppbyggingu almennrar heilsugæslu í fátækum löndum og aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir algenga sjúkdóma, svo sem alnæmi, berkla og malaríu.

3. Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun sem samþykkt voru árið 2000.

4. Hvernig megi efla samvinnu við frjáls félagasamtök með reglulegum framlögum samkvæmt rammasamningum.

5. Þörf þess að endurskoða lög um Þróunarsamvinnustofnun Íslands í ljósi niðurstaðna nefndarinnar, tillögur verði gerðar þar um.

Nefndin taki í störfum sínum mið af því sem best gerist í svipaðri stefnumótun í nágrannalöndum, t.d. á vegum annarra norrænna þróunarsamvinnustofnana. Einnig hafi hún til hliðsjónar niðurstöður álitsgerðarinnar Ísland og þróunarlöndin sem kom út 1. september 2003 hjá utanríkisráðuneytinu.“

Tillaga þessi er flutt í þriðja sinn, frú forseti. Einu sinni áður tókst að mæla fyrir henni og henni var vísað til nefndar en hún var ekki afgreidd frá hv. utanríkismálanefnd. Því er hún flutt enn og aftur og í þetta sinn með stuðningi þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum.

Í sjálfu sér þarf ekki að hafa langt mál um efni tillögunnar. Markmið hennar eru skýr eins og kemur fram í tillögugreininni sem ég hef greint frá. Það er mjög mikilvægt að þróunarsamvinna Íslands við önnur ríki sé í stöðugri mótun og endurskoðun ef með þarf. Eins og kunnugt er starfar Þróunarsamvinnustofnun eftir lögum frá árinu 1981. Þau lög eru aldarfjórðungsgömul á þessu ári og því telur sú sem hér stendur það löngu tímabært að taka þau til endurskoðunar og einnig að huga betur að því hver hin almennu stefnumarkmið þróunarsamvinnunnar eigi að vera.

Nú er það svo að Þróunarsamvinnustofnun hefur sett sér stefnumið til fjögurra ára. Þau stefnumið voru gefin út í eilitlu riti sem kom út í september árið 2005. Þar er farið nokkuð almennum orðum um stefnumiðin sem flest hver eru góð og vel hugsuð, sýnist mér. En við nánari athugun á því riti og þeim stefnumiðum kemur í ljós að þrátt fyrir að verið sé að leggja þúsaldarmarkmiðin til grundvallar, eins og gert er í þessari tillögu minni, þá framkallast sú áhersla ekki nógu greinilega í þeim markmiðum sem sett eru. Það þarf meira til. Það þarf miklu meira kastljós og einbeitingu á þau verkefni sem lúta að kjörum barna og kvenna um allan heim. Þau eru kjarnaatriði í þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Ef við meinum eitthvað með því að styðja þau og gera þau einnig að okkar markmiðum í þróunarsamvinnu ber okkur að sjá til þess með mun skýrari hætti en gert er í þeim stefnumiðum sem unnin voru á síðasta ári og birtust í haust, gera þau miklu skýrari í stefnumótun Íslands í þróunarsamvinnu.

Ég hef einnig ítrekað gert athugasemdir við annað atriði, bæði á hinu háa Alþingi og í hv. utanríkismálanefnd, hvað þetta varðar. Það fær enginn að taka þátt í þessari vinnu nema ef vera skyldu embættismenn Þróunarsamvinnustofnunar og utanríkisráðuneytis. Ekki virðist gerð meðvituð tilraun til þess að laða að þekkingu og hæfileika eða reynslu og menntun þeirra sem hafa lagt fyrir sig að starfa að þróunarmálum annars staðar en innan ÞSSÍ. Innan háskólasamfélagsins er t.d. þó nokkur hópur fólks, og fer stækkandi, sem hefur stúderað þessi málefni. Hingað til hefur heldur ekki verið reynt að ná þverpólitískri samræðu um það á hinu háa Alþingi og í utanríkismálanefnd hvernig best sé að haga þessum málum. Eignarhaldið á stefnunni er ríkisstjórnarinnar og stefnumiðin sem birt voru í haust eru hennar og hennar einnar. Þau komu aldrei inn á borð utanríkismálanefndar eða Alþingis, eins og hér hefur komið fram. Ég tel því að gildi þeirra sé ekki eins mikið og það væri ef fólk úr öllum stjórnmálaflokkum hefði tekið þátt í þessari vinnu og lagt sitt af mörkum til að móta stefnuna. Það felst nefnilega gildi í því að vinna málin á þann veg, að fara samvinnuleiðina og vonast til þess að ná grundvelli sem allir starfa á. Við þurfum að taka þennan málaflokk, eins og reyndar fleiri, upp úr þeim farvegi sem hann hefur verið í allt of lengi, farvegi sem einskorðast við tvíhliða samvinnu Þróunarsamvinnustofnunar og lögin að sjálfsögðu sem hún starfar eftir sem eru einfaldlega bæði gamall og gamaldags farvegur.

Það er tímabært að endurskoða þetta og það er löngu tímabært að huga að miklu fleiri þáttum en tvíhliða samvinnu við önnur ríki í þróunarsamvinnu. Vissulega þarf að gera það líka en fjölhliða þróunarsamvinna, eins og hún er kölluð, hefur vaxandi gildi á alþjóðlegum vettvangi. Hún gerir okkur kleift, sérstaklega sem lítilli þjóð með takmörkuð fjárráð, — þó svo þau hafi aukist mjög til þessa málaflokks á undanförnum missirum — að gera miklu meira gagn og vinna með stofnunum og frjálsum félagasamtökum með miklu sterkari hætti en hingað til hefur verið gert.

Nú er það svo að ÞSSÍ gerir þetta að nokkru leyti en það eru hliðarverkefni, það eru ekki aðalverkefni. Vissulega er það svo að í fjárlögum er beinum styrkjum og beinum framlögum veitt til stofnana, t.d. stofnana Sameinuðu þjóðanna, og það er vel. En það þarf að fara í miklu meiri og dýpri samvinnu við t.d. stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Það þarf að gefa frjálsum félagasamtökum, og þeim krafti og þeirri þekkingu sem þar býr, byr undir báða vængi í þessum málaflokki. Það eigum við í raun eftir að gera. Þó að margt hafi verið vel gert, og þó að íslensk félagasamtök standi sig mjög vel með dyggum stuðningi almennings, er hægt að gera miklu betur í þessum efnum.

Einnig kemur hér fram, frú forseti, það er skoðun flutningsmanna þessarar tillögu að við eigum að setja það markmið að 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu fari til þróunarsamvinnu árið 2015. Það er samkvæmt þúsaldarmarkmiðum. Eins og vitað er hefur Alþingi Íslendinga áður sett sér þessi markmið, setti sér þau fyrst árið 1971, ítrekaði þau svo árið 1985, að ég hygg, og nú er líklega komið 3–4 áratugum síðar að láta nú verða af því að standa við þær skuldbindingar sem við höfum tekist á herðar, í raun loforð sem við höfum gefið öðrum þjóðum með aðild okkar að Sameinuðu þjóðunum og með því að samþykkja þúsaldarmarkmiðin og skuldbinda okkur til að fylgja þeim eins og við höfum gert.

Framlög til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hafa hækkað nokkuð á undanförnum árum og á síðasta ári náðu þau að öllum líkindum 0,21 eða 0,22% af vergri þjóðarframleiðslu. Það er markmið ríkisstjórnarinnar, eins og kunnugt er, að það hlutfall verði 0,335% 2008–2009. Það hefur síðan gerst að gengisþróun hér á landi hefur unnið með þessum framlögum og þau hækkuðu um hvorki meira né minna en 50% milli ára 2004 til 2005. Það er gott í sjálfu sér og það er í sjálfu sér ágætt að það skuli einhver græða á gengisþróuninni. Hins vegar verður að skoða þessar staðreyndir og þessar hækkanir í því ljósi að allt sem hækkar getur lækkað, samanber stöðu gengisins í dag. Og það má ekki stýra framlögum okkar til þessa mikilvæga málaflokks hver staða krónunnar er. Mér hefur fundist örlítil tilhneiging til þess að láta vel út líta vegna þess að gengið hefur þróast með þessum hætti en eins og allir vita getur það breyst á einum degi og við verðum að setja okkur fastmótaðar tillögur um það hversu mikið framlögin eigi að hækka á hverju ári sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu án tillits til gengisþróunarinnar.

Frú forseti. Í þessari tillögu er farið í mjög stuttu máli yfir þróunarsamvinnu Íslands við önnur ríki á undanförnum árum, um það lagaumhverfi sem Þróunarsamvinnustofnun starfar innan og það hvernig framlög hafa hækkað nokkuð á síðustu árum sem betur fer. Flutningsmenn eru þeirrar skoðunar að það sé mjög brýnt verkefni að gæta jafnvægis á milli tvíhliða og fjölhliða aðstoðar og að lyfta frjálsum félagasamtökum í þessu samhengi og í þessum merku og mikilvægu verkefnum. Verkefnin eru mýmörg og nærtæk. Efst á blaði er að sjálfsögðu baráttan gegn fátækt, gegn barna- og mæðradauða, baráttan fyrir því að allir hljóti grunnmenntun, allir læri að lesa og skrifa, stelpur og strákar, og baráttan fyrr jöfnum rétti karla og kvenna um allan heim. Ég held að það verði aldrei of oft lögð áhersla á það að baráttan gegn fátækt og fyrir bættum skilyrðum og lífsskilyrðum fólks um allan heim er í raun og veru baráttan fyrir auknum jöfnuði, ekki bara á milli fólks heldur á milli landa og jöfnuði innan landa og í kjarna sínum í raun barátta fyrir kvenfrelsi. Við vitum að það er ekki síst kúgun kvenna sem veldur því að samfélög fá ekki dafnað og þrifist eins og gætu annars. Til alls þessa þarf að taka tillit í þessari vinnu. Leiðarljósin fimm, sem gerð er grein fyrir í tillögugreininni, eru mjög skýr að mínu áliti og ég vona að þessi tillaga fái jákvæða umfjöllun bæði hér á þingi og í hv. utanríkismálanefnd og afgreiðslu í vor af því að ég hygg að það sé ekki seina vænna að fara að setja niður áætlun sem við ætlum að fylgja þannig að við getum staðið keik árið 2015 með 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu til þróunarsamvinnu og líka vitandi vits að sú vinna sem fram hefur farið og þær áætlanir sem við höfum gert hafa staðist og þær hafa komið fólki að góðum notum og stuðlað að vaxandi velsæld og hagsæld víða um heim.