Takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru.
Frú forseti. Hér er komin fram tillaga til þingsályktunar um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru. Ég fagna þessari þingsályktunartillögu. Mér finnst sérstaklega gott að í textanum er sagt að ráðherra eigi að leitast í þessu skyni m.a. við að ná samstöðu með framleiðendum, innflytjendum og auglýsendum um að þessar vörur verði ekki auglýstar í sjónvarpi fyrr en eftir klukkan níu á kvöldin. Ég held að það sé grundvallaratriði að ná samstöðu með auglýsendum sjálfum um þetta mál.
Ég heyrði einhvern tíma á upphafsdögum NFS, held ég, kosningastjóra Gísla Marteins Baldurssonar, sem tapaði reyndar í einhverju prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokknum, tala mikið um forsjárhyggju Samfylkingarinnar í þessu máli. Henni þótti þessi þingsályktunartillaga hið versta mál og fann henni allt til foráttu. Ég held hins vegar að hér séu sett fram í greinargerð mjög góð og gild rök fyrir því að fundin verði leið til að takmarka með einhverjum hætti auglýsingar sem beinast gegn börnum sérstaklega vegna þess að þetta er auðvitað mikið heilsufarsmál. Við ættum við að taka okkur Breta þarna til fyrirmyndar sem hafa ákveðið að banna auglýsingar á ruslfæði með ákveðnum hætti. Hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fór vel yfir það í sinni inngangsræðu hvernig Bretar hafa gert þetta. Það er sérstakt ánægjuefni að tvö stór fyrirtæki í matvöruverslun í Bretlandi, Sainsbury og Tesco, hafa þegar boðað að þau ætli að vera með sérstakar vörumerkingar á mat þar sem tekið er mið af ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Mér finnst líka athyglisverð grein Jóhönnu Ingvarsdóttur sem birtist í Morgunblaðinu 22. september 2005 og er birt sem fylgiskjal III með þessari þingsályktunartillögu. Það fer hún einmitt ofan í það hversu mikið heilsufarslegt vandamál þetta er að verða, að 20% evrópskra skólabarna séu of feit og að ástandið fari versnandi með hverju ári. Það er gott til þess að vita að hjartaverndarstofnanir í 20 Evrópulöndum ásamt þremur samstarfssamtökum hafa tekið höndum saman um verkefnið „Börn, offita og tengdir langvinnir sjúkdómar sem má forðast“. Það er ánægjulegt að íslenskur samstarfsaðili í þessu verkefni sé samtökin Hjartavernd.
Í grein Jóhönnu kemur fram að framleiðendur þessara vara, sem eru t.d. gosdrykkir og feitmeti, hamborgarar, kartöfluflögur og þess háttar, beiti í síauknum mæli samþættum og háþróuðum aðferðum við að koma vörunum á framfæri við börn með beinum og óbeinum hætti. Þar segir enn fremur að í alþjóðlegri rannsókn sem fór fram á árabilinu 1996–1999 í 15 löndum kom fram að alls staðar voru matvörur stærsti flokkur auglýstra vara í dagskrárliðum barna og langmest af því sem var auglýst reyndist vera sælgæti, sætt morgunkorn, snakk og gosdrykkir og allt af 95% af auglýsingum matvara í sjónvarpi voru um vörur með mikilli fitu, miklum sykri eða salti. Við þekkjum það öll sem eigum börn að börnin stýra að miklu leyti innkaupum heimilanna. Það er ekki alltaf auðvelt að segja nei við kröfum barnanna þegar þau vilja kaupa dísætt morgunkorn eða kippurnar af gosi þó maður reyni yfirleitt að standa á bremsunni og rökræða um hollustu eða þá hafa þetta á sérstökum dögum. En það er athyglisvert að þó flestir átti sig á mikilvægi þess að vernda börn fyrir áhrifum auglýsinga almennt þá hafa aðeins sex lönd sett sérstakar reglur um markaðssetningu matvæla. Þessi lönd eru Bretland, Danmörk, Finnland, Írland, Spánn og Þýskaland. Íslendingar eru í hópi þeirra sem hafa alls ekki sett neinar reglur um þetta. Þess vegna held ég að það sé hið besta mál að heilbrigðisráðherra taki það að sér að skoða grundvöll fyrir lagasetningu á þessum nótum. Í raun finnst mér það alls ekki mikil forsjárhyggja eða takmörkun að komast að samkomulagi um að auglýsingar sem beinast gegn börnum sérstaklega fái ekki að vera á dagskrá fyrr en eftir klukkan níu á kvöldin. Ég vona að það verði tekið mjög jákvætt í þessa þingsályktunartillögu og að hún fái skjótan framgang.