Fjárhagsvandi Háskólans á Akureyri.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs um þennan dagskrárlið til að ræða örlítið um fjárhagsvanda Háskólans á Akureyri sem hefur verið í umræðu lengi, bæði opinberlega og meðal þingmanna Norðausturkjördæmis og annars staðar. Þessi vandi er margvíslegur er manni sagt, eftir því við hvern er talað. En leiga í svokölluðu rannsóknarhúsi, sem var byggt í einkaframkvæmd samkvæmt forskrift og ákvörðun ríkisstjórnarinnar, vegur þungt. Þessi leiga Háskólans til eigenda hússins er talin vera um 60–80 millj. kr. en peningar hafa ekki fylgt með frá fjármálaráðuneytinu vegna þessa verks. Sama má í raun og veru segja um samning um kennslu og rannsóknir, þar vantar upp á fjármagn þannig að fjárhagsvandinn er talinn vera í kringum 100 millj. kr.
Það gengur auðvitað ekki að auka starfsemi án þess að fé komi með. Með öðrum orðum, virðulegi forseti, verða aukin verkefni ekki fjármögnuð af núverandi rekstrarfé skólans. Auðvitað verður fé að fylgja með á fjárlögum.
Ég ræði þetta hér til að spyrja hæstv. menntamálaráðherra en jafnframt hvetja hana til dáða við að vinna málinu brautargengi innan ríkisstjórnarinnar og nefni þá sérstaklega fjármálaráðuneytið. Það er ekki hægt að una því að það þurfi að draga svo úr starfsemi skólans sem raun ber vitni, og minni ég þá á fjölmennan fund stúdenta sem kröfðust þess að gripið yrði inn í þetta mál.
Það er mjög mikilvægt, virðulegi forseti, að um málið geti haldist samhljómur meðal pólitískra flokka, að það verði ekki pólitískt bitbein. Þingflokkur Samfylkingarinnar svo og stjórnarandstöðuflokkarnir allir hafa sýnt stuðning í verki. Menntamálaráðherra á að vita af því og hafa það í sínu farteski að stjórnarandstöðuflokkarnir eru því hlynntir að unnið verði að lausn vandans og hafa hvatt til þess með tillögum sínum, m.a. fjárlagagerð.