Fjárhagsvandi Háskólans á Akureyri.
Virðulegi forseti. Háskólinn á Akureyri hefur vaxið ótrúlega og langt fram úr björtustu vonum frá því að hann var settur á stofn árið 1986 af Sverri Hermannssyni, þáv. menntamálaráðherra, síðar stofnanda Frjálslynda flokksins. Þetta var árið 1986, áður en Sjálfstæðisflokkurinn missti vitið í byggðamálum.
Það dylst engum að það var mikið heillaspor, ekki síst fyrir landsbyggðina, að stofna þennan skóla. Sverrir Hermannsson sagði þá að þessi stofnun yrði verðmætari en KEA, ÚA og Samherji. Það hefur heldur betur komið á daginn.
Hér áðan sagði hæstv. menntamálaráðherra að aldrei hefði verið skorið niður í fjárframlögum til Háskólans á Akureyri. Jæja. Niðurskurður er afstætt hugtak. Það má vel vera að aldrei hafi verið skorið niður í krónum talið en skólinn hefur samt sem áður dregist aftur úr því fjárframlög til hans hafa engan veginn verið í takt við fjölgun nemenda. Þar liggur kannski mesti vandinn.
Að sjálfsögðu verða stjórnvöld að tryggja að Háskólinn á Akureyri fái áfram að vaxa og dafna. Ég held að við hljótum öll að vera sammála um það. Velgengni skólans hefur verið slík að það hlýtur að hvetja okkur öll til dáða og við hljótum að ganga að því sem vísu að stjórnvöld bæti hér úr ekki seinna en strax og tryggi að þessi skóli og aðrir háskólar á landsbyggðinni fái áfram að sinna þeim góðu og merku störfum sem þeir hafa svo sannarlega gert á undanförnum árum.