132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Fjárhagsvandi Háskólans á Akureyri.

[10:44]
Hlusta

Halldór Blöndal (S):

Frú forseti. Það gleður mig að sá skuli vera hljómur í ræðum stjórnarandstæðinga að vel hafi verið að Háskólanum á Akureyri staðið. Það segja allir þingmenn sem hér hafa tekið til máls að vöxtur háskólans hafi verið mikill og við því megi búast að svo verði áfram, sem sýnir betur en allt annað hversu vel hefur verið staðið að stjórn og rekstri þessa háskóla. Það er til marks um það sem hæstv. menntamálaráðherra sagði hér áðan að ársnemendum hefur á árabilinu 2000–2005 fjölgað um 123% eða meira en helmingi meira en í öðrum háskólum að meðaltali. Fjárframlög hafa hækkað um 114% eða meira en helmingi meira en til annarra háskóla að meðaltali, sem sýnir að vel er að háskólanum staðið og hafa margir komið þar að verki. Ég vil gjarnan segja við formann þingflokks Frjálslynda flokksins að hann ætti oftar að vitna til verka og orða Sverris Hermannssonar meðan hann var í góðum félagsskap.

Ég vil líka segja að ég er þakklátur hv. þingmönnum Samfylkingarinnar hversu mikinn áhuga þeir hafa fengið á Háskólanum á Akureyri nú á þessum dögum. Við höfum (Gripið fram í.) — hv. þm. Össur Skarphéðinsson grípur fram í fyrir mér, hann greiddi stundum atkvæði hér sem ráðherra sem hann gat ekki staðið við í ríkisstjórn. Ég er mjög þakklátur fyrir að þessir hv. þingmenn skuli sýna þessu máli áhuga. Ég hef átt nokkra fundi með háskólarektor um þessi mál. Við Arnbjörg Sveinsdóttir áttum fund með honum nú fyrir skömmu og fórum yfir málið. Þá sagði ég háskólarektor að við Arnbjörg mundum berjast fyrir því að hans sjónarmið kæmust til skila og ég vil fullvissa hv. þingmenn um það, og nemendur Háskólans á Akureyri og kennara, að Sjálfstæðisflokkurinn og ríkisstjórnin mun vinna vel að þessu máli og með því tryggja að vöxtur og viðgangur Háskólans á Akureyri geti haldið áfram í þeim mæli sem vonir þeirra standa til sem best hafa staðið á bak við hann í fortíðinni.