Fjárhagsvandi Háskólans á Akureyri.
Frú forseti. Ég er líka þakklát fyrir þann samhljóm og það veganesti sem ég fæ héðan úr hinu háa Alþingi. En það er alveg ljóst þegar talað er um sprengingu, m.a. í nemendafjölda Háskólans á Akureyri þá þýðir það auðvitað aukin fjárframlög. Þó að menn vilji ekki kannast við þessar tölur þá er það þannig að aukningin hefur verið mun meiri til Háskólans á Akureyri en til annarra skóla.
Gott og vel. Það þarf engu að síður að leysa fjárhagsmálefnin og það ætlum við okkur að gera. Ég hef ítrekað tekið þetta upp í ríkisstjórn og ég tel mig hafa stuðning ríkisstjórnarinnar til að fara í þessi verkefni og leysa þau. En ég vil jafnframt ítreka að það er mikill samhljómur milli mín og háskólarektors. Það er þörf á endurskipulagningu á Háskólanum á Akureyri, burt séð frá hagræðingu og burt séð frá þeim vanda sem steðjar að núna, þá þarf skólinn fyrst og fremst að standast þær kröfur sem við gerum til háskóla núna til að mæta aukinni samkeppni og til að mæta þeim sterku og miklu kröfum sem alþjóðaháskólasamfélagið gerir til háskóla vítt og breitt um heiminn. Ég get fyllilega tekið undir það að Háskólinn á Akureyri er afar þýðingarmikill í byggðalegu sjónarmiði. Hann er það og margir hafa talað um að hann sé á við stóriðju. Ég tek heils hugar undir það.
Þá vil ég líka brýna menn í þá veru að við verðum að gera ríkar kröfur til háskólans hvað varðar rekstur og gæði. Þar er samhljómur milli mín og háskólarektors. Hvers vegna er það? Það er til þess að Háskólinn á Akureyri verði háskóli í fremstu röð og þannig og þess vegna erum við að vinna að því að lausnin verði til frambúðar, ekki plástursmeðferð eins og ég leyfi mér að segja aftur, heldur til frambúðar þannig að Háskólinn á Akureyri geti haldið áfram að byggjast upp og verið í fremstu röð.