Skólamáltíðir.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þá ágætu umræðu sem hér fer fram og tel hana afar brýna. Ég tel líka brýnt að úr þessum sal komi skýr skilaboð frá okkur um að við viljum sjá hollar og góðar matarvenjur í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum
Það sem ég vil aðallega koma inn á er að fara þarf almennt í gegnum það, bæði í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, hver kostnaðurinn er sem leggst á fjölskyldur vegna skólagöngunnar. Þarna á ég við, eins og fram kom í hinni góðu úttekt Kastljóssins í gær, að það þarf ekki síður að skoða þann kostnað sem leggst á fjölskyldur vegna dagvistarúrræða og dagvistunar eftir hádegi í grunnskólum landsins. Þegar allt er tekið saman, maturinn, dagvistunin og auk þess líka bókakostnaður og annað, eru þetta orðnar töluverðar fjárhæðir fyrir fjölskyldur í landinu, ég tala ekki um þær fjölskyldur sem eru með fleiri en eitt barn í skóla. Það kom meira að segja fram í Kastljóssþættinum í gær að fjölskylda með eitt fjögurra ára barn og eitt sjö ára barn sem nýtir sér hluta af þessari þjónustu greiðir allt upp í 470 þúsund á ári. Þetta eru miklar upphæðir, virðulegi forseti, og því tel ég mikilvægt að þetta verði skoðað í samhengi vegna þess að kostnaðurinn sem leggst á fjölskyldur er mismunandi eftir aldursskeiðum barnanna. Það er einnig mismunandi milli sveitarfélaga hversu stór þáttur skólamáltíðirnar eru í þessum kostnaði. Því skora ég á ráðherra að gera úttekt á þessum málum almennt og á hvaða fjölskyldum og hvaða fjölskylduformi þessi gríðarlegi kostnaður kemur verst niður. Ég tel mikilvægt að það verði dregið fram.