Skólamáltíðir.
Virðulegi forseti. Skólamáltíðir eru tiltölulega nýtt fyrirbæri hér á landi þó að þær hafi viðgengist um áratuga skeið í flestum nágrannalöndum okkar.
Sveitarfélögin tóku við grunnskólanum árið 1996, fyrir tæpum tíu árum. Þá var fyrirsjáanlegt að leggja þyrfti í mikinn kostnað í skólabyggingum vegna þessara skólamáltíða sem teknar mundu verða upp, en ég reikna ekki með að menn hafi þá séð fyrir eða áttað sig á hversu mikill kostnaður fylgir þessu fyrir barnafjölskyldur. Það hefur líka ýmislegt breyst frá þessum tíma, skólatíminn hefur lengst og því þarf að mæta, þjóðfélagsgerðin er önnur og skólarnir gegna því auknu hlutverki langt fram eftir degi miðað við það sem áður var.
Þessar skólamáltíðir, sem mjög gott er að eru að komast á, eru mjög þungur baggi á barnafjölskyldum. Ég heyrði í skólastjóra í stórum skóla á landsbyggðinni þar sem skólamáltíðir eru komnar á. Það var tvennt sem hann sagði mér. Annars vegar að hann ætti sjálfur þrjú börn í skóla og þyrfti að borga með þeim hátt í 20 þús. kr. á mánuði, þó er búið að niðurgreiða þessar máltíðir af sveitarfélaginu. Hitt sem hann sagði mér og vakti athygli mína var það að þó nokkuð væri um brottfall, eins og hann nefndi það, frá því að nemendur tækju við þessu tilboði. Hann gerði sér ekki grein fyrir hvort það var vegna fjárhags foreldra eða af öðrum ástæðum. Það hefur komið fram í athugun í Reykjavík að það er ekki endilega vegna fjárhags foreldra en ég held samt sem áður að heimili sem eru með þrjú, fjögur börn í leikskóla og grunnskóla, muni verulega um þessar upphæðir.
Ég fagna því að endurskoðun á lögum um skóla á Íslandi er fram undan. Ég tel að þá þurfi að mæta þessu með því að opinber stefna verði mótuð og síðan verði samskipti ríkis og sveitarfélaga í kostnaði eftir þeim reglum sem um það munu gilda.