Skólamáltíðir.
Frú forseti. Ég vil geta þess að menntamálaráðuneytið hefur veitt ýmsa styrki til aðgerða til að bæta hollustu og hreyfingu í grunnskólum, t.d. með verkefninu „Heilsuefling í skólum“ fyrir nokkru og einnig með stuðningi annarra, eins og t.d. í gegnum Latabæ sem er með þjóðarátak gegn hreyfingarleysi og offitu barna. Ég vil einnig geta þess að núna liggja á borðinu hjá mér drög að íþróttastefnu sem felur í sér hvatningu til alls samfélagsins um að íþróttavæðast, hreyfa sig og vekja fólk til vitundar um að borða hollan og góðan mat.
Það er líka ljóst að í aðalnámskrá, sem ráðuneytið setur leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, er lögð áhersla á heilbrigða og holla lífshætti. Á öllum skólastigum er námsgreinin lífsleikni líka kjörinn vettvangur til að fjalla um slík mál. Rétt er að taka fram að heimilisfræði er skyldunámsgrein á grunnskólastigi og þar er m.a. lögð áhersla á að nemendur læri að útbúa holla og næringarríka rétti, læri um næringarfræði, heilbrigði, hollustu og neytendafræði. Það smitar vonandi síðan út í neysluna sjálfa þannig að nemendur átti sig á að best er að borða hollan og góðan mat. Ég vil líka geta þess til gamans að á framhaldsskólastigi er matreiðsla víðast hvar mjög vinsæl valgrein í almennum framhaldsskólum. Þetta dreg ég fram m.a. til að sýna fram á að vekja þarf fólk til vitundar um, bæði börn og foreldra, að það skiptir máli að borða hollan og góðan mat og það þarf líka að hafa aðgang að hollum og góðum mat. En það var athyglisvert sem kom hér fram í umræðunni að skólamáltíðirnar eru nokkuð misjafnar. Ég tel hins vegar vera samhljóm héðan af Alþingi að við viljum hvetja allt skólakerfið, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, að bjóða upp á og hafa aðgang að hollum og góðum mat. Við erum kannski ekki sammála um aðferðirnar til að ná því en samhljómurinn er engu að síður sá að við viljum hvetja samfélagið allt til að borða hollan og góðan mat, hvort sem það er í skólakerfinu eða annars staðar.