Samstarf Vestur-Norðurlanda um markmið í fiskveiðimálum.
Frú forseti. Þessi þingsályktunartillaga, sem hv. þm. Halldór Blöndal mælti fyrir, er að mörgu leyti afskaplega góð og framsýn. Þar er lagt til að vestnorrænu löndin taki upp sérstakt samstarf um fiskveiðistjórnarmál til þess m.a. að geta haft sterkari stöðu gagnvart Evrópusambandinu í samningum. Mig langar að spyrja hv. þm. Halldór Blöndal hvort hann telji ekki æskilegt að þessi lönd kæmu sér saman upp sérstöku fiskverndarsvæði í Norður-Atlantshafi sem þau hefðu sameiginlega stjórn á og gætu þar með hjálpað hvert öðru að verjast ásælni annarra ríkja. Ríkin eru skyld að verulegu leyti. Þau liggja saman á hnattkringlunni. Þau eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta og eiga það öll sameiginlegt að hafa komist á legg á grundvelli þróttmikils sjávarútvegs. Þetta þarf að verja og ég er sjálfur þeirrar skoðunar að sú hugmynd að koma upp sameiginlegri stjórn á þessum svæðum, sem væru þá töluvert yfirgripsmikil, gæti leitt til þess að samningsstaða okkar gagnvart Evrópusambandinu yrði sterkari en ella og sömuleiðis möguleikar okkar á að verja þessa hagsmuni. Við höfum auðvitað töluvert mikið samstarf nú þegar en um þetta vildi ég spyrja hv. flutningsmann.