132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Samstarf Vestur-Norðurlanda um markmið í fiskveiðimálum.

297. mál
[11:35]
Hlusta

Flm. (Halldór Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég hygg að hv. þingmanni sé kunnugt þá er þegar víðtækt samstarf milli þessara þjóða varðandi nýtingu auðlinda hafsins og ég hef skilið það svo og veit ekki betur en sá áhugi sé vaxandi hjá öllum þjóðunum. Ég tek undir með hv. þingmanni að nauðsynlegt er að efla samstarf þeirra á þessu sviði.