132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Samstarf vestnorrænna landa í orkumálum.

299. mál
[11:59]
Hlusta

Flm. (Halldór Blöndal) (S):

Frú forseti. Þessi ályktunargrein er stutt og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar, með hliðsjón af ályktun Vestnorræna ráðsins á ársfundi 2004, að fela ríkisstjórninni, í samvinnu við landsstjórnir Færeyja og Grænlands, að efla samstarf vestnorrænna landa í orkumálum.“

Tillaga þessi var lögð var fram á 131. löggjafarþingi en varð þá eigi tekin á dagskrá. Tillagan er sett fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 1/2004 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 20.–24. ágúst 2004. Ályktunin var á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Vestnorræna ráðið skorar á ríkis- og landsstjórnir landanna þriggja að efna til samstarfs um orkumál þjóðanna, með áherslu á sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda. Óskað er eftir því að gerð verði grein fyrir framgangi samvinnunnar með árlegri skýrslu.

Samstarf þjóðanna á sviði orkumála hefur verið ánægjulegt þrátt fyrir ólíkar aðstæður og mismunandi leiðir við nýtingu. Engu að síður er mikilvægt að efla enn frekar samstarf landanna á milli og miðla þekkingu og reynslu betur en gert hefur verið.

Orkumál eru mikilvægur málaflokkur í örri þróun og því mikilvægt að stuðla að aukinni samvinnu og nýjum áherslum í orkuframleiðslu, einkum hvað varðar sjálfbæra nýtingu. Því er mikilvægt að horfa til framtíðar og þeirra tækifæra sem samvinna vestnorrænu landanna á sviði orkumála getur veitt við þróun endurnýjanlegrar orku.

Vestur-Norðurlönd búa yfir sérfræðiþekkingu og tækni í tengslum við umhverfisvæna endurnýjanlega orku og orkusparnað, auk þess sem stefnt er að frekari þróun á því sviði. Í Færeyjum hafa þegar verið reistar vindmyllur, á Grænlandi er áhersla lögð á vatnsorku og á Íslandi eru gerðar tilraunir með hagnýtingu vetnis sem orkugjafa. Að öðru leyti er orkan sem notuð er í vestnorrænu löndunum afar ólík. Löndin eiga þó það markmið sameiginlegt að auka vægi endurnýjanlegra orkugjafa, svo sem vatns- og vindorku, jarðvarma og vetnis.“

Fleiri eru ekki þessi orð. Ég legg til að málinu verði vísað til síðari umr. og utanríkismálanefndar.