132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Samstarf Vestur-Norðurlanda um baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa og umhverfisvernd.

543. mál
[12:09]
Hlusta

Flm. (Halldór Blöndal) (S):

Herra forseti. Þingsályktunargreinin er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar, með hliðsjón af ályktun Vestnorræna ráðsins á ársfundi 2005, að fela ríkisstjórninni, í samvinnu við landsstjórnir Færeyja og Grænlands, að hefja samstarf um að Vestur-Norðurlönd standi saman í fararbroddi í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda.“

Tillaga þessi er sett fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2005, sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 22.–24. ágúst 2005. Ályktun ráðsins var efnislega á þessa leið:

Vestnorræna ráðið hvetur stjórnvöld á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi til að hefja samstarf um að Vestur-Norðurlönd verði saman í fararbroddi í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda.

Vestnorrænar þjóðir bera ábyrgð á einum mestu náttúruauðæfum heimsins. Vestur-Norðurlönd eru einstakt svæði í heiminum sem getur haft forustuhlutverki að gegna í sjálfbærri auðlindanýtingu, verndun hafsvæða og nýtingu umhverfisvænna orkulinda. Þetta er vafalaust eitt af mikilvægustu verkefnum sem heimurinn stendur frammi fyrir og hefur mikinn pólitískan forgang í öllum löndum heims og alþjóðlegum samtökum á 21. öld.

Vestnorrænu löndin hafa hvert fyrir sig kerfi um stjórn á nýtingu fisks og sjávarspendýra sem nýtur alþjóðlegrar virðingar. Vestnorrænu löndin hafa hvert fyrir sig átt virkan þátt í verndun hafsins. Vestnorrænu löndin vinna einnig hvert fyrir sig að verkefnum og áætlunum um að nýta endurnýjanlegar og mengunarlausar orkulindir.

Sameiginlegt framlag Vestur-Norðurlanda sem frumkvöðlasvæðis í þessum málaflokkum getur fært vestnorrænum löndum sterka stöðu og hlutverk á alþjóðasviði og aflað þeim gífurlegra ávinninga í alþjóðlegum markaðsmálum.

Ég vil svo bæta við þessa greinargerð sem fylgir tillögunni að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og hæstv. sjávarútvegsráðherra Einar K. Guðfinnsson kynntu nýlega niðurstöður rannsókna á óæskilegum efnum í íslensku sjávarfangi. Þessar rannsóknir sýna að mjög lítið er af eiturefnum eins og díoxíni, PCB og kvikasilfri í fiski af Íslandsmiðum og er magnið langt undir þeim mörkum sem sett eru sem hámark innan Evrópusambandsins og í Bandaríkjunum. Vestnorræna ráðið leggur mikla áherslu á að svo verði áfram.