132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Fjármálaeftirlit.

556. mál
[16:07]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nú komið að lokum þessarar umræðu. En lokaspurning mín til hæstv. iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra er bara þessi: Vill hæstv. ráðherra ekki fá úr því skorið og fá að vita frá hendi Fjármálaeftirlitsins hvort ríkið hafi verið platað í þessu tiltekna máli?