132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Fjármálaeftirlit.

556. mál
[16:08]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef engar sérstakar áhyggjur út af þessu máli. Það er búið að skýra það. Sé Fjármálaeftirlitið að skoða það þá er það þess mál. Þá kemur væntanlega niðurstaða úr því en þetta er ekki það sem ég er að velta fyrir mér þessa dagana. Ef um eitthvað saknæmt er þarna að ræða þá verður það ekkert í skýrslu til mín heldur verður það gert opinbert.