Kjaradeila ljósmæðra.
Frú forseti. Fregnir berast af kjaradeilu milli heilbrigðisráðuneytisins og ljósmæðra sem eru verktakar og þar af leiðandi hluti af einkavæddu heilbrigðiskerfi. Ég ætla ekki að blanda mér í þá kjaradeilu en ég vil benda á að sú þjónusta að útskrifa konur innan 36 tíma eftir fæðingu hefur stóraukist, úr 4% fæðinga fyrir nokkrum árum upp í 64% fæðinga núna. Að sjálfsögðu eru konur í áhættufæðingum, keisaraskurðir og slíkt, ekki útskrifaðar innan þessara tímamarka. Þetta er orðið mjög algengt og fólk virðist meta þennan valkost mjög mikils enda margir kostir við hann. Móðirin er áfram í kunnuglegu umhverfi, ekki verður eins mikil röskun á högum eldri barna og auk þess er aðgangur að ljósmæðrum talinn góður því þær eru í rauninni á bakvakt allan tímann. Vegna anna á sjúkrahúsinu er jafnvel betri aðgangur. Þetta er ódýrari og betri kostur fyrir þjóðfélagið. Ljósmæður koma í allt að 8 vitjanir, að meðaltali 7,5, þær taka blóðprufur úr börnum og skila inn á sjúkrahús og eru í raun á bakvakt án greiðslna. Þetta kostar u.þ.b. 40–50 þús. kr. á hverja fæðingu og það er minna en kostar að hafa konu einn dag á sjúkrahúsi. Þetta er því miklu betri kostur.
Gallinn við þetta kerfi okkar er sá að í því eru margar hendur sem útdeila ríkisfé. Svo virðist vera að höndin sem greiðir mikla peninga og sparar mikla peninga viti ekki af hinni sem greiðir örlítið meira. Ég vil endilega að ráðuneytið hafi allar hendurnar í huga og líka það að sparnaðurinn sem verður á heilbrigðiskerfinu hjá sjúkrahúsunum er þegar kominn fram. Búið er að nýta húsnæði og mannskap í aðra starfsemi og ríkið sparar því óhemjufé á þessari þróun og það á að líta til þess þegar það semur við ljósmæður.