132. löggjafarþing — 75. fundur, 2. mars 2006.
Hafnalög.
380. mál
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson óskaði eftir afstöðu framsóknarþingmanna til þess máls sem hér er til umræðu. Það er að finna á þskj. 436 og er frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum. Afstaða okkar felst í því að við stöndum að því stjórnarfrumvarpi.