132. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2006.

Stofnun framhaldsskóla í Mosfellsbæ.

176. mál
[12:18]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg):

Herra forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um stofnun framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Flutningsmenn eru hv. þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Jón Bjarnason og Kolbrún Halldórsdóttir. Ég fagna því að fulltrúar Samfylkingarinnar og Frjálslynda flokksins taka þátt í þessari umræðu og eru afar jákvæðir. Maður skyldi nú ætla að fulltrúar stjórnarflokkanna tveggja kæmu líka upp til að segja sína skoðun á málinu, en eins og svo oft áður er ekki einu sinni einn einasti þingmaður Framsóknarflokks eða Sjálfstæðisflokks í salnum. Ég veit ekki hvernig á að túlka það en vona að þeir bregðist fljótt við og mæti til að segja skoðun sína á málinu.

Það er borðleggjandi og augljóst að það á að reisa framhaldsskóla í Mosfellsbæ, og þó fyrr hefði verið. Við vitum að það er afar mikilvægt að framhaldsskólanemar geti stundað nám við sitt hæfi í sinni heimabyggð. Við höfum fjallað um það og í síðustu viku var lögð fram tillaga um að stofnaður yrði framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð. Við höfum svo mýmörg dæmi um það hvílík lyftistöng það er fyrir bæjarfélag þegar framhaldsskóli er stofnaður og nemendur þurfa ekki að fara langar leiðir í skóla. Það hefur líka verið minnt á það hér í umræðunni að þetta er umhverfismál. Akstur fram og aftur tvisvar á dag er auðvitað stórmál. Þess vegna er þetta þjóðhagslega hagkvæmt. Þetta er spurning um að fólk þurfi ekki að sækja vinnu, því auðvitað er nám vinna, til Reykjavíkur, 10 eða 20 kílómetra leið, og það einmitt á leið sem er mikill álagspunktur í gatnakerfinu. Þetta tengist aftur máli sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir lagði fram í þarsíðustu viku um stofnbrautir hjólreiðamanna sem ættu að vera komnar fyrir löngu svo að auðveldlega væri hægt að hjóla frá Mosfellsbæ inn til Reykjavíkur. Eins og er er það stórhættulegt að ætla að reyna að fara á hjóli milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.

Það hefur líka aðeins verið komið inn á það í þessari umræðu að því miður gætir dofa og áhugaleysis hjá bæjarstjórn Mosfellsbæjar, eða meiri hlutanum þar réttara sagt. Þannig vill til að meiri hlutinn er einmitt skipaður Sjálfstæðisflokknum. Ég held að sá flokkur sé með hreinan meiri hluta, því miður, í þeim bæ. En það er stutt til kosninga og ég ætla rétt að vona að Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, sem var einmitt að stilla upp sínum lista þar í síðustu viku, takist að hrekja Sjálfstæðisflokkinn frá völdum. Þá fyrst fer kannski eitthvað að gerast í skólamálum í Mosfellsbæ. Það er nú dálítið einkennilegt að þar sem sömu flokkar og sitja í ríkisstjórn eru í bæjarstjórnum líka er einhver dofi og slappleiki í skólamálum. Í þessum töluðum orðum eru nemendur Háskólans á Akureyri að funda með efstu mönnum á listum í bæjarstjórn. Í bæjarstjórn Akureyrar sitja þessir sömu flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, og eru ótrúlega slappir í því að þrýsta á sína flokksfélaga hér í ríkisstjórn að gera eitthvað af viti í málum Háskólans á Akureyri, þrýsta á að Háskólinn á Akureyri fái fjármagn í samræmi við fjölgun nemenda.

Ef þessi tillaga nær fram að ganga trúi ég því að hún ýti við hæstv. menntamálaráðherra og hún einhendi sér í málið. Ef það dugar ekki eru kosningar þann 27. maí og þá getur stjórnarandstaðan tekið við og ýtt enn frekar á þetta mál. Þetta er mikilvægt byggðamál fyrir Mosfellsbæinga. Þetta er þjóðhagslega hagkvæmt. Þetta er umhverfismál. Þetta er menningarmál vegna þess að framhaldsskóli í heimabyggð er mikilvæg menningarstofnun eins og kemur fram í greinargerðinni. Ég vitna orðrétt í greinargerðina, með leyfi forseta:

„Blómlegt félags- og tómstundastarf byggist jafnan upp í kringum starf einstakra framhaldsskóla sem gefa hverju byggðarlagi um sig tækifæri til að styrkja sína sérstöðu með samstarfi við skólana.“

Það hefur verið farið vel yfir það í þessari umræðu að hátt hlutfall íbúa Mosfellsbæjar er á framhaldsskólaaldri og Mosfellsbær er hratt vaxandi sveitarfélag. Þess vegna á ekki að vera með hangandi hendi heldur drífa í að stofna góðan framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Ég vona að það verði gert sem fyrst.