132. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2006.

Kynbundinn launamunur.

224. mál
[16:58]
Hlusta

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu um þarft málefni. Ég kem aðeins til að bæta því við um launaleyndina að ekki skal dregið úr frammistöðu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í því efni. Rétt er hins vegar að geta þess að fyrir þessu þingi sem nú situr liggur frumvarp þar sem ég hygg að hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sé aðalflutningsmaður með fleiri samfylkingarmönnum. Það er um að banna launaleynd með tilteknum hætti, þ.e. að banna það að starfsmanni sé gert skylt í kjarasamningum að leyna launum sínum, þannig að hann hafi sjálfur tækifæri til að gera þau opinber með þeim hætti sem hann vill, m.a. með því að bera þau saman við laun annarra starfsmanna. Ég hygg að þetta hafi verið gleymska eða misskilningur hjá þingmanninum og óska ekki eftir því sérstaklega að hún svari þessu, enda um einfalda leiðréttingu að ræða.