Kynbundinn launamunur.
Frú forseti. Já, já. Orðavalið um það að okkar frumvarp gangi lengra er kannski ekki hárnákvæmt, ég get svo sem alveg viðurkennt það. En það breytir ekki því að okkur fannst þörf á að hampa þessu máli okkar og standa með því en það er ekki af því að við séum ekki samþykk meginprinsippunum sem koma fram og liggja til grundvallar þingsályktunartillögunni sem hér er rædd.
Mér finnst líka skipta máli að hafa það í huga að við erum í þessum báðum tilfellum að tala um þingmannamál og við vitum öll hvaða örlög þingmannamál fá í þinginu, því miður. Það er allt of sjaldgæft að þingmannamál nái í gegn og fái efnismikla umræðu eða umfjöllun í nefndum, því miður. Það gildir í sjálfu sér alveg það sama um þingmál frá stjórnarþingmönnum, þ.e. frá stjórnarflokkunum og frá þingmönnum í stjórnarandstöðu. Ég og hv. þm. Siv Friðleifsdóttir vitum að það verður erfitt fyrir okkur að þoka þessum málum okkar áfram í gegnum nefndarstarf þingsins. En ég held hins vegar að hv. þm. Siv Friðleifsdóttir hafi meiri tök á því að kúska ráðherra sína til og sjá til þess að þeir reki af sér slyðruorðið í þessum efnum og ekki verði þörf á því að þingmenn stjórnarflokkanna flytji þingmál sem beinlínis eru að gefa yfirlýsingu um það að sá ráðherra sem fer með jafnréttismál sé ekki að standa sig nægilega vel því allt stendur þetta í jafnréttisáætluninni sem ríkisstjórnin segist í orði kveðnu stíga eftir.