132. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2006.

Áfengislög.

235. mál
[18:03]
Hlusta

Flm. (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tek undir þetta sjónarmið. Ég er einnig andvígur boðum og bönnum. Ég tel það geta einmitt verið gott að samfélag þurfi að hafa fyrir því að breyta málum. Til dæmis hefur dregið úr reykingum á Íslandi, ekki vegna boða og banna heldur vegna þess að þjóðfélagið hefur tekið sig á um að upplýsa um hættuna sem stafar af reykingum.

Ég segi það fyrir mitt leyti að ég var með alveg opinn huga hvað þetta snertir þegar tóbaksfrumvarpið kom til umfjöllunar á Alþingi og í nefndum þingsins. En eftir að hafa heyrt eindregin sjónarmið alls þess fólks sem þessum málum tengist í heilbrigðiskerfinu og fulltrúa starfsfólksins einnig sem vill fá þessi lög sér til verndar, sinni heilsu til verndar þá öðlast hugtakið boð og hugtakið bann aðra merkingu, þ.e. þegar um er að ræða heilsuvernd og vernd samfélagsins. Út á það gengur þetta þingmál einnig. Ég upplifi þetta ekki sem bann eða boð. Ég upplifi þetta sem tilraun til þess að draga úr skaðsemi þessara efna.