132. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2006.

Uppbygging héraðsvega.

310. mál
[16:16]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar frá hv. þm. Drífu Hjartardóttur sem var nú eiginlega ekki mjög mikið andsvar heldur í grundvallaratriðum stuðningur við málið. Auðvitað er það alveg rétt, og ég sagði það einmitt í ræðu minni, að ýmislegt hefur verið gert gott. Áherslan hefur hins vegar verið dálítið mikil á stóru verkefnin, á jarðgöngin og hina stóru vegi og ég er ekki að segja að það sé ekki mikilvægt, það er vissulega mikilvægt líka.

En þegar þenslan í þjóðfélaginu er eins og hún er núna og verði hún áfram er dálítið hættulegt að horfa til þess að farið verði að skera aftur niður í framlögum til vegamála og það var einmitt gert. Slegnar voru af nokkrar framkvæmdir og öðrum var frestað. Þenslan í þjóðfélaginu er slík einmitt vegna stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar að það bitnar á samgöngumálum. Það má auðvitað alls ekki gerast.

Hins vegar fagna ég því að við getum verið sammála um mikilvægi héraðsvega og tengivega. Við getum farið út í þá umræðu að einbreiðar brýr eru enn þá allt of margar og bara á þjóðvegi 1 milli Akureyrar og Reykjavíkur, hugsið ykkur, þar eru fimm eða sex einbreiðar brýr enn þá, stórhættulegar auðvitað. En það horfir sem betur fer til bóta.