Uppbygging héraðsvega.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunum um þetta mál og fyrir innlegg þeirra og góðu undirtektir. Mér fannst að allir væru sammála um mikilvægi þess að gera átak í að bæta ástand þessara vega. Ég held að það verði í raun ekki gert nema með einhverju sérstöku átaki þar sem þessir vegaflokkar fái ákveðna meðferð til að fara í slíkt átak. Þetta skiptir orðið svo miklu máli fyrir samkeppnishæfni þessara byggða, bæði félagslega og atvinnulega séð, að fá góða vegi og dragast ekki aftur úr. Á vissan hátt grisjast byggðin víðast fjarlægðarlega séð og allir verða stöðugt háðari góðum samgöngum. Börnum er ekið í skóla, fólk sækir atvinnu, fólk býr úti í sveit og sækir atvinnu annað o.s.frv. Vegasamgöngur eru því forsenda fyrir að slík byggðarlög geti verið samkeppnishæf og boðið upp á mannsæmandi kjör hvað þetta varðar. Ég rek það nokkuð ítarlega í tillögunni hvernig umræddir vegaflokkar hafa hlutfallslega staðið í stað eða dregist aftur úr hvað fjármagn varðar.
Það er síðan aftur annað mál hvort okkur finnst vera of lítið fjármagn sett í vegamál í heild sinni, hvort mikið eða lítið sé gert. Við erum öll sammála um að það er aldrei eða seint gert of mikið og við vildum svo sannarlega öll sjá að gert væri meira og hörmum það þegar verið er að skera niður fjárveitingar til vegamála, sem þó er búið að samþykkja tillögur um á Alþingi, til að mæta einhverjum öðrum efnahagsþáttum í þjóðfélaginu, eins og við upplifum núna að vegáætlun er skorin niður til að mæta þenslu frá stóriðju.
Þessir vegaflokkar, innanhéraðsvegirnir, hafa setið eftir og þess vegna legg ég til, og við flutningsmenn þessarar tillögu, þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að um eitthvert árabil verði sérstökum fjárveitingum varið í að setja kraft í uppbyggingu sveitaveganna og það dragi ekki úr framkvæmdum í öðrum þáttum vegamála. Hliðstæð ákvörðun var tekin fyrir kosningarnar 2003, hárrétt fyrir kosningar. Þá var tekin ákvörðun um að setja sérstakt fjármagn í ákveðna vegaflokka í landinu. Það var reyndar ekki staðið við það því það var skorið niður eftir kosningar. En það er ekkert sem útilokar, síður en svo, að tekin sé þingleg ákvörðun um átak varðandi þessa vegaflokka sem lúta að aðstæðum þessa fólks og gera þessi byggðarlög samkeppnishæf hvað þetta varðar.
Ég vil í lokin, herra forseti, taka undir það sem hv. þm. Hlynur Hallsson sagði. Flest bréf sem þingmenn fá, a.m.k. þingmenn sem koma af landsbyggðinni, lúta að vegamálum í heimahéraði. Með tillögunni eru allmörg fylgiskjöl hvað það varðar. Hér er bréf frá Ferðamálafélagi Barðastrandarsýslu þar sem lögð er áhersla á að bæta vegi í Barðastrandarsýslu. Ferðamálafélag Barðastrandarsýslu leggur til að gert verði ráð fyrir eftirtöldum vegabótum á ferðamannaleiðum í Barðastrandarsýslu, segir í bréfinu, og síðan eru þær raktar. Hér er bréf frá sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps, dagsett 26. febrúar 2004, þar sem lögð er þung áhersla á að bæta og gera átak í vegum innan héraðs. Það er undirritað af Elvari Árna Lund fyrir hönd Öxarfjarðarhrepps með von um greinargóð svör innan tíðar.
Hér er bréf frá sveitarstjórn Þingeyjarsveitar þar sem einnig er lögð þung áhersla á að bæta þessa innanhéraðsvegi og þar er rakið ítarlega hve miklu máli það skiptir það byggðarlag. Hér er bréf frá Ingunni Guðmundsdóttur, sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til þingmanna Suðurkjördæmis þar sem lögð er áhersla á átak í þessum vegum. Þar segir, með leyfi forseta:
„Við keyrum börn í skóla daglega eftir þessum vegum. Póstbíllinn, mjólkurbíllinn, fóðurbíllinn, sláturhúsbíllinn og alls konar flutningar fyrir utan akstur íbúanna til almennra starfa sinna. Við verðum að fá þetta í lag. Það er hægt að sætta sig við að hafa ekki malbik ef við hefðum góða malarvegi. Íbúar hafa komið að máli við mig eftir sumarleyfi og sagt sögur af ferðum sínum um landið. Í þeim sögum eru vegirnir heima bornir saman við eðalvegi í öðrum kjördæmum þó malarvegir séu.“
Við þekkjum svo sem þennan samanburð en engu að síður rekur sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps mjög ítarlega hve mikilvægt það er að bæta vegi innan héraðs. Hér er bréf frá sveitarfélaginu Ölfusi þar sem er lögð áhersla á þessa sömu þætti, bréf frá sveitarstjórn Kaldrananeshrepps um vegamál í Kaldrananeshreppi sem lúta nákvæmlega að því sama. Hér er bréf frá ábúendum á Dæli í Víðidal, hér er bréf frá ábúendum og eigendum jarðanna í Flókadal í Borgarfirði og Húnaþings vestra, allt um þetta sama mál, um vegi innan héraðs. Bréf frá hreppsnefnd Rangárþings ytra, frá Norðurhéraði, frá sveitarstjórn Dalabyggðar, frá Byggðasamlagi Húnavallaskóla, þar sem þeir leggja áherslu á að vegirnir sem börnunum er ekið eftir í Húnavallaskóla eru allt saman lélegir malarvegir sem hafa fengið lítið viðhald á undanförnum árum. Hér er bréf frá sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar, frá bæjarráði Borgarbyggðar, svo dæmi séu nefnd. Það er alveg ljóst hve þunga áherslu íbúar í héruðum landsins leggja á þessa vegi og þess vegna er sú tillaga flutt að gert verði sérstakt átak varðandi þessa innanhéraðsvegi, sem ég kalla safn- og tengivegi. Það er líka þjóðfélagslegt atriði að halda byggð í landinu og að byggðin fái að vera samkeppnishæf hvað þetta varðar. Góðir vegir um héruðin stækka Ísland, bæði byggðalega og atvinnulega séð.
Ég þakka fyrir mjög góðar umræður um þetta mál og að lokinni umræðu óska ég eftir að tillögunni verði vísað til hv. samgöngunefndar.